Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Strætó ók á fólksbíl Björgvin Brynjarsson Strætó ók á fólksbíl á gatnamótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar í kvöld. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang en meiðsli eru minniháttar, að sögn slökkviliðsins. Töluverður viðbúnaður er á vettvangi samkvæmt ábendingu til fréttastofu. Ekki fengust upplýsingar um takmarkanir á umferð. Myndin tengist fréttinni ekki beint. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál SA og ASÍ sammála um að ríkisstjórnin verði að axla ábyrgð Stjórnvöld verða líka að axla ábyrgð á að ná niður vöxtum og halda aftur af útgjöldum á sjálfstýringu, segja framkvæmdastjóri SA og forseti ASÍ. Fyrir 15 mínútumÍÞRÓTTIR Sund Bætti dagsgamalt heimsmet sitt Ítalinn Sara Curtis bætti heimsmetið í 50 metra baksundi kvenna annan daginn í röð. Hún tryggði sér um leið Evrópumeistaratitilinn. Ungverjinn Kristóf Milák sló svo Evrópumetið í 100 metra flugsundi karla. Þar að auki féllu tvö mótsmet. Fyrir 35 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Sigur Víkinga dugði ekki til – Valur tapaði stórt Víkingur vann Svissnesku meistarana í Thun 3-2 í forkeppni Evrópudeildar karla í fótbolta í kvöld. Thun vann þó samanlagt og Víkingur færist niður um keppni. Valur tapaði stórt fyrir danska liðinu Nordsjælland í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrir 37 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Mikilvægir fjarskiptainnviðir sameinaðir undir Korda Farice ehf., Öryggisfjarskipti ehf. og tæknihluti Neyðarlínunnar ohf. sameinast undir merkjum Korda. Markmið sameiningarinnar er að styrkja rekstraröryggi, net- og upplýsingaöryggi og viðnámsþrótt mikilvægra innviða. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Tæp 5% kjósenda hafa þegar skilað inn atkvæði sínu Yfir þrettán þúsund hafa þegar skilað inn atkvæði utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Alvarlegt ef brottvísun brotamanna dregur úr fælingarmætti Afbrotafræðingur segir plássleysi í íslenskum fangelsum draga úr fælingarmætti refsinga. Ákvörðun um brottvísun og reynslulausn manns sem var dæmdur fyrir morð fyrir fimm árum síðan veki margar spurningar. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Gunnar Þórðarson jarðsunginn Tónlistamaðurinn Gunnar Þórðarson var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Hann var einn dáðasti tónlistarmaður landsins og voru margar af perlum hans fluttar við athöfnina. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Samúel og Shmuley rabbíni tókust á í þætti Piers Morgans Íslendingurinn Samúel Guðmundsson er gestur í nýjasta þætti Piers Morgan. Þar mætti hann bandaríska rabbínanum Shmuley Boteach. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir mætast en Shmuley sakaði Samúel um gyðingahatur fyrr í mánuðinum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Svíar samþykkja sakhæfi 14 ára barna Sænska þingið samþykkti í dag með miklum meirihluta að hægt verði að dæma 14 ára börn til fangelsisvistar fyrir alvarleg brot. Lagasetningin er viðbrögð við því að glæpagengi ráði börn í auknum mæli til að fremja glæpi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Stjörnu-Sævar stefnir á almyrkva á Spáni á næsta ári Sævar Helgi Bragason er strax farinn að horfa til næsta almyrkva á sólu og hyggur á ferð til Spánar á næsta ári. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Ísland ekki átt jafn marga meðal tólf efstu á EM í 28 ár Íslendingar munu eiga minnst þrjá keppendur meðal tólf efstu á EM í frjálsíþróttum í Birmingham á Englandi. Það er mesti fjöldi Íslendinga svo ofarlega á EM í 28 ár eða síðan á EM árið 1998. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Vill láta reyna á samningana þrátt fyrir forsendubrest Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir langæskilegast að samningsaðilar láti á það reyna að láta samningana lifa út samningstímann þrátt fyrir forsendubrest. Hann segir það mikil vonbrigði að verðbólgan hafi aukist svo mikið á aðeins einu ári. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Svona upplifðu landsmenn sólmyrkvann Við báðum landsmenn um að senda okkur myndir og myndbönd á degi sólmyrkvans, 12. ágúst 2026. Hér er það sem þið senduð okkur. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ekvador Myndir af Erling Haaland umlykja kókaín Lögreglan í Ekvador lagði nýverið hald á um eitt og hálft tonn af kókaíni. Efninu var pakkað í yfir 1.600 einingar og var hluti þeirra merktur mynd af norska knattspyrnumanninum Erling Haaland. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Ákæra eigendur Santé fyrir að selja rútu af bjór og rauðvínsflösku Eigendur vefverslunarinnar Santé hafa verið ákærðir fyrir peningaþvætti og brot á áfengislögum. Þetta er í annað sinn sem gefin er út ákæra vegna netverslunar með áfengi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fangelsismálastjóri um Angjelin: „Mér finnst það skipta máli að það sé engin losun út í samfélagið hér“ Maður sem hlaut 16 ára dóm fyrir að morð í Rauðagerði fyrir fimm árum hefur fengið reynslulausn. Hann gengur nú laus í heimalandi sínu, Albaníu. Fangelsismálastjóri segir ákvörðunina byggjast á nýjum bráðabirgðalögum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matvælastofnun Innkalla pylsur frá Krónunni vegna skorts á innihaldslista Guðmundur Atli Hlynsson Framleiðslulota af pylsum frá Krónunni hefur verið innkölluð vegna skorts á innihaldslista á umbúðum. Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja við að neyta pylsanna. Pylsurnar hafa lotunúmerið 758-26210-2. Hægt er að skila þeim aftur í verslun til að fá endurgreiðslu. Þær eru framleiddar af Kjarnafæði Norðlenska fyrir Krónuna. „Ein lota af vörunni fór á markað án innihaldslista. Varan inniheldur sojaprótein sem kemur ekki fram á umbúðum hennar. Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, hefur innkallað vöruna,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar. Til vinstri má sjá pylsupakka úr lotunni sem vantar á innihaldslista. Til hægri er venjulegur pakki af pylsum frá Krónunni. Matvælastofnun Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Leikfangabyssumál enn til rannsóknar á Akureyri Mál fimmmenninganna sem handteknir voru á Akureyri um verslunarmannahelgina er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Landselurinn við Íslandsstrendur í útrýmingarhættu Fækkað hefur verulega í selastofninum við strendur Íslands á síðustu árum. Hann er á válista og talinn í útrýmingarhættu. Niðurstöður talningar eru áhyggjuefni. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Stressandi að sitja í stúkunni og bíða Sindri Hrafn Guðmundsson segir það hafa verið stressandi að bíða eftir staðfestingu þess að hann væri kominn í úrslit í spjótkasti á EM í frjálsíþróttum. Hann kastaði 79,21 metra og varð ellefti í forkeppninni. Úrslitin verða á laugardag. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Skátaflokki vísað af landsmóti á Akureyri Hóp drengja frá Katar var vísað af landsmóti skáta á Akureyri. Þeir brutu mótsreglur og þurfti að virkja viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins. Lögregla og barnaverndaryfirvöld voru kölluð til. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Eurovision Eurovision haldin í borginni Burgas við Svartahaf Eurovision 2027 verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu við strendur Svartahafs. Búlgaría bar sigur af hólmi í keppninni í vor þegar söngkonan Dara flutti lagið Bangaranga. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar og Bandaríkjamenn segjast báðir stjórna Hormússundi Íranski byltingavörðurinn segir að Íranar ráði enn alfarið Hormússundi. Þetta er svar við fullyrðingum forseta Bandaríkjanna að Bandaríkin séu nú með algjöra stjórn á sundinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Varaformaður Vinstri grænna segir já Varaformaður Vinstri grænna segist ætla að greiða atkvæði með aðildarviðræðum við ESB. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Stöðva þéttingaráform við Sóleyjarima Umhverfis- og skipulagsráð hefur fallið frá áformum um fyrirhugaða íbúðarbyggð á Sóleyjatúni í Grafarvogi. Ákvörðunin er tekin í samræmi við stefnu meirihlutans. Fulltrúar minnihlutans harma ákvörðunina. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Hristu rassinn fyrir barnsfaðir þinn“ Það eru fjölbreytt yrkisefni hjá tónlistarfólkinu okkar þessa vikuna í Undiröldunni. Boðið var upp á allt frá lifandi latínódjassi yfir í tregafullt tilvistarkreppurokk með viðkomu í dansvænu rasshristandi nútímapoppi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Telur að EES-samningurinn lifi ekki af til lengri tíma Ine Eriksen Søreide leiðtogi norska hægri flokksins segist ekki hafa trú á að EES-samningurinn haldi velli til lengri tíma. Það sé óháð því hvað Ísland geri í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok mánaðarins. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Sindri Hrafn kastar í úrslitum á EM Sindri Hrafn Guðmundsson keppti í undanrásum spjótkasts á EM í Birmingham í dag. Lengsta kast Sindra Hrafns var 79,21 og það skilaði honum inn í úrslitahlutann. Hann kastar í úrslitum á laugardagskvöld. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Aldrei séð annan eins glundroða á Keflavíkurflugvelli Einn eigenda bílaleigu við Keflavíkurflugvöll segir allt hafa gengið vel fyrir sig þrátt fyrir mikið annríki og biðraðir eins og voru í brottfararsalnum í morgun. Biðraðir teygðust út á bílastæði. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Eyjamenn óttast altjón á nýju lögninni – klára samt lagninguna Haldið verður áfram að leggja nýja neysluvatnslögn til Vestmannaeyja þrátt fyrir að hún hafi skemmst um helgina. Bæjarstjóri segir það skásta kostinn og vonar að hægt verði að nýta hana að hluta. Tjón hleypur á milljörðum, en á ekki að falla á bæinn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sólmyrkvi 2026 Sjáðu sólmyrkvann utan úr geimnum Veðurstofa Íslands birti myndbönd þar sem sólmyrkvi gærdagsins sést utan úr geimnum