Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bilunin sem olli rafmagnsleysi í Mosfellsbæ og Grafarvogi fundin

Read Full Article →

Rafmagnslaust var í kvöld í hluta Grafarvogs og Mosfellsbæjar vegna bilunar, segir í tilkynningu á vef Veitna . Rafmagnsleysis varð fyrst vart í öllum Mosfellsbæ og hluta Grafarvogs klukkan rétt fyrir klukkan átta í kvöld en rafmagni hefur verið komið á hluta Mosfellsbæjar. Í uppfærslu frá því laust fyrir hálf ellefu segir jafnframt að bilunin sé fundin og að rafmagn komi á fljótlega. Í tilkynningunni segir að verið sé að kanna hvað veldur rafmagnsleysinu. Þá er bent á að það geti einnig haft áhrif á afhendingu á heitu vatni, sér í lagi ofarlega í hæðum. Netsamband getur einnig orðið fyrir áhrifum. Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir að rekja megi rafmagnsleysið til háspennubilunar en að óvenju langan tíma taki að finna hana. Viðgerðarfólk Veitna fari skipulega milli svæða í leit að biluninni og útiloki hvert svæði fyrir sig. Ekki sé hægt að slá inn dreifistöðvar nema búið sé að útiloka bilun á því svæði, öryggis starfsfólks vegna. Hún segir tilkynningu á vef Veitna verða uppfærða um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að bilunin fannst

Share this article