Innlent | Morgunblaðið | 13.8.2026 | 23:40 Heyjað var á gamla mátann á Hrafnseyri Heyjað var á túnunum á Hrafnseyri á gamla mátann síðustu helgi. Sannkölluð heyskaparblíða tók á móti harðduglegum gestunum. Margrét Hallmundsdóttir staðarhaldari vonast til þess að heyskapur með gömlu aðferðinni verði árlegur viðburður á Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar. Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Heyannir eru á Hrafnseyri. Fjöldi fólks kom úr nærliggjandi sveitum til að sjá hvernig heyjað var á gamla mátann sl. sunnudag á Vestfjörðum. Viðburðurinn er liður í því að sýna fólki hvernig heyjað var áður en iðnbyltingin innleiddi nýjar lausnir í þeim málum. Margrét Hallmundsdóttir, staðarhaldari á Hrafnseyri, ræddi við Morgunblaðið. Þetta er í annað skiptið sem heyjað er á Hrafnseyri í seinni tíð en það var einnig gert í fyrra. Margrét segist vonast til þess að Heyannir á Hrafnseyri verði árlegur viðburður héðan í frá. Heyskapur til forna „Sigurlaugur Ingólfsson frá Árbæjarsafni og Ingibjörg konan hans héldu fyrst fyrirlestur og sögðu frá því hvernig heyskapur fór fram áður fyrr, hvaða orð voru notuð og orðatiltæki, og deildu ýmsum fróðleik um heyskap til forna,“ segir Margrét. Hún segir að gestum á Hrafnseyri hafi verið kennd rétt handtök, hvernig ætti að beita orfi og ljá og raka. Þá voru þeir einnig fræddir um mismunandi áhöld sem notuð voru til heyskapar í gamla daga. Margrét Hallmundsdóttir „Við erum með stór tún hérna og burstabæ, og svona var heyjað alveg fram undir árið 1950 á landinu. Það skiptir máli að halda þessu við og sýna fólki hvernig handbrögðin voru. Þetta er ótrúlega fljótt að gleymast.“ Margrét segir fólk á öllum aldri hafa verið á Hrafnseyri. Yngstu gestirnir hafi verið tveggja mánaða gamlir tvíburar. Sá elsti var á níræðisaldri. Sannkölluð heyskaparblíða hafi tekið á móti fólki sem kom meðal annars frá Súðavík, Þingeyri og Ísafirði. Staðarhaldarinn segir ýmislegt fleira vera á döfinni hjá þeim á Hrafnseyri. Þar er dagskrá fram undan fram á haust. Hér áður fyrr voru orf og ljáir notuð við heyvinnu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan en gaman er að rifja upp gamla mátann. Þjóðbúningar og hvalir „Næstu helgi er þjóðbúningamessa hérna í tengslum við ráðstefnu sem Þjóðbúningafélag Íslands heldur næstu helgi á Ísafirði og á Hrafnseyri,“ segir Margrét. Hún segir jafnframt að fyrirlestrar um hvali verði haldnir á Hrafnseyri þann 30. ágúst. „Það er svo svakalega mikill hvalur núna hérna í firðinum. Þá koma líffræðingar sem eru að vinna við rannsóknir á hvölunum hér fyrir vestan.“ Guðni Th. Jóhannesson gegnir embætti prófessors í nafni Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri. Hann tók við stöðunni í fyrra og heyjaði í ár. Haustmessa verður einnig haldin á Hrafnseyri eftir að sumrinu lýkur í tilefni af því að Hrafnseyrarkirkja er 140 ára í ár. „Það er ekkert rafmagn í henni. Þannig að þá kveikjum við á kertum og gerum þetta í rökkrinu, þetta verður bara eins og í gamla daga. Og þetta var mjög vel sótt í fyrra. Það var full kirkja,“ segir Margrét Hallmundsdóttir, staðarhaldari á Hrafnseyri, að lokum. Ýmislegt er fram undan á Hrafnseyri á næstu misserum, eins og þjóðbúningamessa og messa í tilefni af 140 ára afmæli Hrafnseyrarkirkju. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sigldu fram á borgarísjaka við Hornstrandir Heyjað var á gamla mátann á Hrafnseyri Selur fyrir milljarða á TikTok Radíóamatörar fagna átta áratuga afmæli Einstakt atvik í sænskum glæparannsóknum Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Viðreisnarverkfræðingur skemmir skrúðgönguna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Bílvelta á Vesturlandi: Umferðin farin að þyngjast Myndaveisla: Margmenni á Ægisíðunni Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Nýjast á mbl.is » Sigldu fram á borgarísjaka við Hornstrandir Heyjað var á gamla mátann á Hrafnseyri Selur fyrir milljarða á TikTok Radíóamatörar fagna átta áratuga afmæli Einstakt atvik í sænskum glæparannsóknum Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Viðreisnarverkfræðingur skemmir skrúðgönguna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Öryggisleitarröð náði út fyrir Leifsstöð Inga Sæland minnkar við sig Myndir: Almyrkva náð Væntingar um að rannsókn verði felld niður Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara