Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hiti að 20 stigum sunnanlands en svalt norðan heiða

Read Full Article →

Skammt austur af landinu er lægð sem þokast í austnorðaustur en hennar vegna verður norðanátt ríkjandi í dag. Strekkingur við austurströndina en annars hægari. Skýjað að mestu framan af degi og sums staðar væta norðan heiða en léttir smám saman til sunnan- og vestanlands. Það verður fremur svalt í veðri á norðanverðu landinu með hita á bilinu 5 til 10 stig. Mun hlýrra veður sunnanlands og hitinn allt að 20 stigum. Hægur vindur og bjart veður um helgina. Útlit fyrir austanátt með rigningu á sunnanverðu landinu eftir helgi. Milt veður í flestum landshlutum.

Share this article