Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Moroccanoil hættir sem aðalstyrktaraðili Eurovision

Read Full Article →

Búlgarska söngkonan Dara vann keppnina fyrir Búlgaríu í vor með laginu Bangaranga. Kennimerki Moroccanoil má sjá í bakgrunni myndarinnar.EPA / HANNIBAL HANSCHKE Ísraelska fyrirtækið Moroccanoil hefur ákveðið að endurnýja ekki styrktarsamning sinn við Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Norska ríkisútvarpið greinir frá. Fyrirtækið, sem framleiðir meðal annars ýmsar hárvörur, hefur verið aðalstyrktaraðili keppninnar í sex ár. Fyrirtækið var stofnað í Tel Aviv í Ísrael árið 2003 og mikið af framleiðslunni fer fram í Ísrael þó að höfuðstöðvar fyrirtækisins séu í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur verið á sniðgöngulista vegna átakanna á Gaza og því hefur styrktarsamningurinn við Eurovision keppnina verið umdeildur. Næsta Eurovision keppnin verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu í maí 2027.

Share this article