Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Að segja eitt en gera allt annað

Read Full Article →

Fyrir alþingiskosningarnar fyrir að verða tveimur árum sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í kappræðum á vegum Morgunblaðsins að það þyrfti að vera afgerandi stuðningur ­meðal kjósenda fyrir því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið enda vildi hún ekki standa frammi fyrir því að vera með klofna þjóð á kjörtímabilinu. Í því samhengi sagði hún mikilvægt að niðurstaðan yrði ekki 52% á móti 48% og nefndi 70% á móti 30% sem nógu afgerandi niðurstöðu. Nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðsluna hefur þessi afstaða Kristrúnar aftur á móti gjörbreyst því í viðtali í Bítinu á Bylgjunni á dögunum sagði hún 51% vera nóg en kvaðst þó gjarnan vilja fá meira afgerandi svar. Nýjustu kannanir benda til þess að Kristrúnu verði ekki að ósk sinni, enda útlit fyrir að mjög mjótt verði á munum þegar talið verður upp úr atkvæðakössum. Um leið stendur hún frammi fyrir klofinni þjóð, því sem hún vildi svo mjög forðast rétt fyrir alþingis­kosningar. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article