Innlent | Morgunblaðið | 14.8.2026 | 8:36 Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skipverjar Kaldbaka létu sólmyrkvagleraugun ekki fara til spillis þrátt fyrir þung ský og svartaþoku. Ljósmynd/Samherji Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 Þyrla lenti við Dynjanda: „Trúði ekki mínum eigin augum“ Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann Myndskeið: Breytti degi í nótt Efndu loforðið 4.163 dögum síðar Öryggisleitarröð náði út fyrir Leifsstöð » Fleiri tengdar fréttir Þegar sól sortnaði í fyrradag var togarinn Kaldbakur EA að veiða þorsk og ufsa á Halamiðum norðvestan við landið á miðri slóð almyrkvans. Hefðu vafalaust verið kjöraðstæður fyrir áhöfnina að berja mikilfengleikann augum ef ekki hefði verið fyrir þungt skýjafar og svartaþoku. Oddur Jóhann Brynjólfsson skipstjóri var í brú togarans að fylgjast með dýptarmælum þegar hann sá allt líf hverfa af mælunum eins og hendi væri veifað, en dýptarmælar skipa nema lífmassa með bergmálsmælingum, bæði fiska og átu. Þéttar fiskitorfur sýna til að mynda mjög greinilegt endurvarp en ef dreifing lífvera er mjög gisin nemur mælirinn þær illa. „Það var bara allt í einu, eins og fingri hefði verið smellt, allt horfið,“ segir Oddur í samtali við Morgunblaðið. „Það var eins og fiskurinn hefði splundrast við þetta eða eitthvað.“ Hann útskýrir að hann sé tiltölulega vanur því að sjá breytingar á lífinu í hafi í ljósaskiptum en það sem honum hafi þótt sérstaklega einkennilegt við þetta tilvik var að fiskurinn kom ekki aftur í langan tíma eftir að sólmyrkvanum var lokið. Var tilbúinn með trollið Það var raunar ekki fyrr en að ganga níu, tæpum þremur tímum eftir myrkvann, sem Oddur segist hafa orðið var við það á dýptarmælunum að lífið væri að skila sér til baka. „Það var svo skrýtið. Það kemur engin alvöru dimma nema bara í smá stund og samt hagaði fiskurinn sér bara eins og eitthvað mikið hefði gerst.“ Eins og góðum skipstjóra sæmir gerði Oddur ráðstafanir ef skyndilegt myrkrið skyldi reynast honum hagfellt. Hann var sannfærður um að atburðurinn myndi hafa einhver áhrif á lífríkið, og þar með aflabrögðin, en hann vissi þó ekki nákvæmlega hvað myndi gerast. Annaðhvort yrði gríðarleg veiði eða lítil veiði, hugsaði hann með sér. „Ég hífði til að vera tilbúinn með trollið niðri á sjálfum myrkvanum til að sjá hvort maður fengi eitthvað meira, en það fór nú ekki þannig,“ segir hann, eilítið kíminn. „Ég hugsaði að fiskurinn myndi kannski þétta sig og þá vildi ég vera tilbúinn, en það var bara ekkert.“ Fáar rannsóknir til Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun, segir fáar rannsóknir liggja fyrir um áhrif sólmyrkva á sjávarlíf, og því síður í kringum Ísland. „Þetta hefur ekki verið rannsakað kerfisbundið hvað varðar sólmyrkva,“ segir hann þegar Morgunblaðið hefur samband til að forvitnast um það hvað gæti hafa gerst í djúpinu þegar myrkvinn reið yfir. „Hins vegar hafa tiltölulega nýlegar rannsóknir beinst að áhrifum ljóss á útbreiðslu ýmissa lífvera í efri lögum sjávar og ljós hefur gríðarleg áhrif.“ Jónas nefnir að þær rannsóknir hafi þó fremur snúið að því hvaða áhrif ljós skipskastara hafa á lífríkið. „Ef þú ert með kastara á skipinu, þá getur þú haft áhrif á útbreiðslu tegunda niður á ansi mikið dýpi, kannski 50-100 metra.“ Þau áhrif sem hægt er að hafa á fisk með ljósi hafa jafnvel verið notuð við þróun nýrra veiðarfæra sem snerta ekki botninn, heldur smala fiskinum í net með ljóskösturum. Jónas útskýrir að dægursveiflur fiska, eins og hann kallar þær, hafi þó lengi verið þekktar og séu þær til að mynda sérstaklega áberandi hjá karfa. Hann veiðist jafnan á daginn í botntroll en svo svífi hann upp á nóttunni. Óútskýrð hegðun Kaldbakur var hins vegar aðallega að veiða ufsa og þorsk og munu það hafa verið þær tegundir sem létu sig hverfa þegar skammnættið skall á. Jónas segir að vanalega ætti þorskurinn að verða fyrir minni áhrifum af ljósbreytingum en karfinn, þótt ljósið hafi vissulega mikil áhrif. „Tegundir eru einfaldlega misviðkvæmar eftir því hversu langt þær eru frá botninum,“ útskýrir hann. Þorskurinn segir Jónas að veiðist minna við botn á daginn en að smærri fiskur sé líklegur til að svífa meira upp á við á nóttunni. Skil ljóss og myrkurs hafa með öðrum orðum mikil áhrif á hegðun ýmissa lífvera í sjónum og segir Jónas að það sé því ekki óvænt að einhverra breytinga á hegðun fiskanna hafi orðið vart þegar ljósið hvarf svo skyndilega. „Það sem kemur mér hins vegar á óvart er að það hafi gerst svona hratt,“ segir hann. Svo málið sé reifað á einfaldan hátt, þá búum við í raun ekki enn þá yfir rannsóknum sem geta fyllilega útskýrt hvað gerðist þegar Oddur Jóhann horfði á dýptarmæla sína og sá lífið í hafinu hverfa eins og dögg fyrir sólu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 Þyrla lenti við Dynjanda: „Trúði ekki mínum eigin augum“ Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann Myndskeið: Breytti degi í nótt Efndu loforðið 4.163 dögum síðar Öryggisleitarröð náði út fyrir Leifsstöð » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vanmátu Tunnufés greifa í kosningum gegn Farage Bora eftir heitu vatni í Laugarnesi Horfði á bíómyndir með systur sinni á milli hringa Fiskurinn hvarf í skammnættinu Enska fótboltafélagið til sölu Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið ESB-aðild opnar á erlend yfirráð „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Ekki eiginlegar samningaviðræður Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Gunnar Þórðarson jarðsunginn Var alblóðugur á gangi í miðbænum Sigldu fram á borgarísjaka við Hornstrandir Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Vanmátu Tunnufés greifa í kosningum gegn Farage Bora eftir heitu vatni í Laugarnesi Horfði á bíómyndir með systur sinni á milli hringa Fiskurinn hvarf í skammnættinu Enska fótboltafélagið til sölu Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Væntingar um að rannsókn verði felld niður Ekki eiginlegar samningaviðræður „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Myndaveisla: Margmenni á Ægisíðunni Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Gunnar Þórðarson jarðsunginn Var alblóðugur á gangi í miðbænum Sigldu fram á borgarísjaka við Hornstrandir Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna