- What: Analysis of Iceland's control over maritime resources
- Impact: Economic and political discussion
200 mílur | Morgunblaðið | 14.8.2026 | 6:38 | Uppfært 10:01 ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Af greiningu SFS má ráða að íslensk yfirráð yfir sjávarauðlindinni séu í stórhættu, verði af ESB-aðild. mbl.is/Anton Brink Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Beint: Sérfræðingar deila reynslu af Evrópumálum Bankinn finnur fyrir samkeppni Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar » Fleiri tengdar fréttir Reynsla annarra Evrópuríkja sýnir að landskvóti tryggir hvorki innlent eignarhald né yfirráð yfir nýtingu hans. Reglur Evrópusambandsins, ESB, takmarki verulega heimildir ríkja til að sporna gegn kvótahoppi og erlendar útgerðir hafi náð yfirráðum yfir aflaheimildum með kaupum á félögum og stofnun dótturfélaga. Þetta kemur m.a. fram í nýrri greiningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, um áhrif aðildar að ESB á erlent eignarhald í sjávarútvegi sem birt er á vefsíðu samtakanna. Segir þar að íslenskar aflaheimildir gætu því áfram verið skráðar á íslenskt félag þótt eignarhald, ákvörðunarvald og ávinningur færðust úr landi. Bent er á að erlent eignarhald í íslenskum sjávarútvegi hafi verið verulega takmarkað og virðisauki greinarinnar að langmestu orðið til á Íslandi með fullvinnslu afurða innanlands. Þær varnir myndu veikjast við inngöngu í ESB, enda geta þær takmarkanir sem nú gilda ekki staðið óbreyttar. Takmarkaðar fjárfestingar Ísland hafi nú sérstaka heimild samkvæmt EES-samningnum til að viðhalda þeim takmörkunum sem gilda um fjárfestingu erlendra aðila í sjávarútvegi. Samkvæmt lögum megi aðeins íslensk félög undir íslenskum yfirráðum stunda fiskveiðar innan efnahagslögsögunnar. Þá megi erlendir aðilar ekki fara með meira en 25% eignarhlut í þessum félögum. Aðild Íslands að ESB myndi að óbreyttu opna fyrir yfirráð erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi, núverandi heimild Íslands samkvæmt EES-samningnum til að setja slíkar takmarkanir myndi falla niður við inngöngu. Segir í greiningunni að varanlegar undanþágur frá grunnreglum innri markaðarins séu fáar og varði helst tiltekin landsvæði, fasteignir eða menningarleg sérkenni. Ekki verði séð að fyrir liggi fordæmi um að heil atvinnugrein sé varanlega undanskilin þeim reglum með sambærilegum hætti. Aðgangur með kvótahoppi Erlendir aðilar geti fengið aðgang að kvóta í öðru landi með því að skrá skip sín, stofna fyrirtæki eða kaupa sjávarútvegsfyrirtæki í öðru aðildarríki. Slíkt kvótahopp geti leitt til þess að ávinningur landskvótans færist til aðila sem hafa lítil eða engin raunveruleg tengsl við viðkomandi ríki. Fram kemur í greiningunni að Bretar hafi reynt að sporna gegn kvótahoppi með reglum um þjóðerni og búsetu eigenda, útgerðaraðila, leigutaka og stjórnenda fiskiskipa en Evrópudómstóllinn hafi talið skilyrðin ósamrýmanleg grunnreglum ESB-réttar í Factortame-málunum. Segja SFS að reglur ESB takmarki verulega svigrúm aðildarríkjanna til að tryggja efnahagsleg tengsl útgerðar við viðkomandi ríki. Almennt megi ekki krefjast tiltekins þjóðernis eða búsetu eigenda, útiloka stjórn erlends móðurfélags eða skylda skip til að landa afla í viðkomandi ríki. Árið 2019 hafi um 20% bresks landskvóta verið í höndum erlendra fyrirtækja. Erlend skip hafi jafnframt veitt um helming aflans á bresku hafsvæði á árunum 2012 til 2016, bæði vegna kvótahopps og samninga um gagnkvæma nýtingu deilistofna. Erlend yfirráð takmarkast ekki einungis við Bretland. Sænskar útgerðir hafi náð yfirráðum yfir dönskum aflaheimildum og eitt hollenskt fyrirtæki ráði yfir nær öllum aflaheimildum Þýskalands í makríl og kolmunna og 64% aflaheimilda í síld. Landskvóti og skráning aflaheimilda á íslensk félög veiti litla vernd ef erlendir aðilar geti keypt félögin sem halda á heimildunum. Aflaheimildirnar gætu áfram verið skráðar á íslenskt félag þótt eignarhald, ákvörðunarvald og ávinningur færðust úr landi. Verði aðildarviðræðum við ESB haldið áfram telja SFS nauðsynlegt að Ísland haldi sömu heimildum og það hefur nú til að takmarka beina og óbeina fjárfestingu erlendra aðila og tryggja að raunveruleg yfirráð yfir félögum með íslenskar aflaheimildir séu innanlands. Þessar heimildir þurfi að koma fram í aðildarsamningi Íslands við ESB og þeim verði ekki breytt án samþykkis Íslands. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Beint: Sérfræðingar deila reynslu af Evrópumálum Bankinn finnur fyrir samkeppni Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Arnar Þór Jónsson: Loftkastalamenn eru ekki áreiðanlegir hagsmunaverðir þjóðar sem býr við raunhagkerfi Mest lesið Í gær Í vikunni Eigandi Bandero hefur ekki svarað ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Fiskurinn hvarf í skammnættinu Umbúðareglur falla illa að Íslandi Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Vestmannaeyjaskipin með góðan afla Strandveiðum lokið eftir metúthlutun Bandero fært úr Sundahöfn Eru með þyrluna tilbúna á Rifi Snerti taug í mörgum í salnum Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Umbúðareglur falla illa að Íslandi Strandveiðum lokið eftir metúthlutun Sóttu veikan kajakræðara Bátur við bát á Faxaflóa Þurrum fótum yfir Breiðafjörð Vestmannaeyjaskipin með góðan afla Snerti taug í mörgum í salnum Eru með þyrluna tilbúna á Rifi Landaði fullfermi af kolmunna Bandero fært úr Sundahöfn Blendnar tilfinningar við að sjá flakið Snerti taug í mörgum í salnum Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn ESB mun semja fyrir okkur Þurrum fótum yfir Breiðafjörð Bátur við bát á Faxaflóa Samningur rann út 1. ágúst ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fleira áhugavert „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Öryggisleitarröð náði út fyrir Leifsstöð Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Ekki betur borgið innan ESB Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.8.26 652,66 kr/kg Þorskur, slægður 13.8.26 731,33 kr/kg Ýsa, óslægð 13.8.26 368,52 kr/kg Ýsa, slægð 13.8.26 175,00 kr/kg Ufsi, óslægður 13.8.26 257,29 kr/kg Ufsi, slægður 13.8.26 320,98 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 13.8.26 319,88 kr/kg Litli karfi 11.8.26 20,00 kr/kg Blálanga, óslægð 13.8.26 405,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 14.8.26 Fagravík GK 161 Handfæri Ufsi 403 kg Þorskur 129 kg Karfi 51 kg Langa 9 kg Samtals 592 kg 14.8.26 Þinganes SF 25 Botnvarpa Þorskur 65.125 kg Karfi 983 kg Ýsa 555 kg Hlýri 295 kg Ufsi 196 kg Steinbítur 55 kg Blálanga 18 kg Langa 12 kg Keila 5 kg Grálúða 3 kg Samtals 67.247 kg 13.8.26 Hafrafell SU 65 Lína Þorskur 18.830 kg Keila 404 kg Hlýri 183 kg Ýsa 111 kg Karfi 110 kg Steinbítur 30 kg Ufsi 12 kg Samtals 19.680 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Eigandi Bandero hefur ekki svarað ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Fiskurinn hvarf í skammnættinu Umbúðareglur falla illa að Íslandi Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Vestmannaeyjaskipin með góðan afla Strandveiðum lokið eftir metúthlutun Bandero fært úr Sundahöfn Eru með þyrluna tilbúna á Rifi Snerti taug í mörgum í salnum Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Umbúðareglur falla illa að Íslandi Strandveiðum lokið eftir metúthlutun Sóttu veikan kajakræðara Bátur við bát á Faxaflóa Þurrum fótum yfir Breiðafjörð Vestmannaeyjaskipin með góðan afla Snerti taug í mörgum í salnum Eru með þyrluna tilbúna á Rifi Landaði fullfermi af kolmunna Bandero fært úr Sundahöfn Blendnar tilfinningar við að sjá flakið Snerti taug í mörgum í salnum Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn ESB mun semja fyrir okkur Þurrum fótum yfir Breiðafjörð Bátur við bát á Faxaflóa Samningur rann út 1. ágúst ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fleira áhugavert Bankinn finnur fyrir samkeppni „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Væntingar um að rannsókn verði felld niður Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.8.26 652,66 kr/kg Þorskur, slægður 13.8.26 731,33 kr/kg Ýsa, óslægð 13.8.26 368,52 kr/kg Ýsa, slægð 13.8.26 175,00 kr/kg Ufsi, óslægður 13.8.26 257,29 kr/kg Ufsi, slægður 13.8.26 320,98 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 13.8.26 319,88 kr/kg Litli karfi 11.8.26 20,00 kr/kg Blálanga, óslægð 13.8.26 405,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 14.8.26 Fagravík GK 161 Handfæri Ufsi 403 kg Þorskur 129 kg Karfi 51 kg Langa 9 kg Samtals 592 kg 14.8.26 Þinganes SF 25 Botnvarpa Þorskur 65.125 kg Karfi 983 kg Ýsa 555 kg Hlýri 295 kg Ufsi 196 kg Steinbítur 55 kg Blálanga 18 kg Langa 12 kg Keila 5 kg Grálúða 3 kg Samtals 67.247 kg 13.8.26 Hafrafell SU 65 Lína Þorskur 18.830 kg Keila 404 kg Hlýri 183 kg Ýsa 111 kg Karfi 110 kg Steinbítur 30 kg Ufsi 12 kg Samtals 19.680 kg Skoða allar landanir »