Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga munu bresta. Þetta kemur fram í tilkynningu stéttarfélagsins. „Stjórn lýsir sig reiðubúna til lausnamiðaðs samtals við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins með það fyrir augum að kjarasamningar geti haldið. En komi ekkert annað til telur stjórn VR uppsögn kjarasamninga óhjákvæmilega.“ Í tilkynningunni segir að launafólk hafi undirritað kjarasamninga undir verðbólgu í trausti þess að fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum og að stjórnvöld stilltu gjaldskrárhækkunum í hóf. „Vonir stóðu til að þetta myndi leiða til lækkunar á verðbólgu og vöxtum. Andstætt fyrirheitum sínum hafa bæði ríki og sveitarfélög hækkað gjaldskrár úr hófi fram og stór fyrirtæki sem hafa verðmótandi áhrif hafa aukið við hagnað sinn á verðbólgutímum.“ Saka stjórnvöld og fyrirtæki um að hafa vanrækt skyldur sínar Stjórn félagsins hafnar því að forsendur kjarasamninga séu í reynd ekki brostnar þar sem kaupmáttur hafi aukist og að verðbólgu megi rekja til utanaðkomandi þátta. „Kjarasamningsbundin laun hafa hækkað minna en verðlag, auk þess sem launafólk, ekki síst barnafólk, situr uppi með gríðarlegan húsnæðiskostnað vegna svimandi hárra stýrivaxta. Vaxtagreiðslur fjölda heimila hafa tvöfaldast á gildistíma kjarasamninganna og það eykur enginn kaupmátt sinn í slíkum aðstæðum nema skuldlaust eignafólk.“ VR sakar stjórnvöld og fyrirtæki um að hafa vanrækt skyldur sínar gagnvart kjarasamningum. Mánuðum saman hafi VR bent á í hvað stefndi og kallað eftir aðgerðum. Við því ákalli hafi ekki verið brugðist.