Gröfumaður gróf í háspennustreng um klukkan hálf tíu í morgun með þeim afleiðingum að rafmagn fór af stórum hluta Mosfellsdals. „Verktakinn sem gróf í strenginn, hann lét okkur vita sem við kunnum að meta,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna. Rafmagnsleysið er því algjörlega ótengt rafmagnsleysi sem varð í stórum hluta Mosfellsbæjar í gærkvöld. Hún telur að viðgerð taki skamma stund. „Af því að við vitum nákvæmlega hvar bilunin er þá getum við örugglega unnið þetta hratt.“ Um klukkan hálf tólf voru allir notendur komnir aftur með rafmagn. Algengt að grafið sé í strengi Silja bendir á undirsíðu á vef Veitna þar sem gefin eru góð ráð sem vert er að hafa í huga áður en byrjað er að grafa í jörð. „Það er alltof algengt að þetta gerist. Það er svo mikilvægt að fólk kynni sér þetta áður en það fer að grafa því að grafa í háspennustreng getur verið mjög hættulegt.“ Fréttin var uppfærð eftir að rafmagn komst aftur á.