Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jarðböðin á Mývatni opna nýjan veitingastað

Read Full Article →

Veitingastaðurinn Earth Lagoon Bistro opnaði fyrr í vikunni við Jarðböðin á Mývatni þar sem gestir geta notið matar og drykkjar með útsýni yfir bæði lónið og Mývatnssveit. Í tilkynningu segir að veitingastaðurinn verði mikilvægur hluti af heildarupplifun lónsins. Matseðillinn er unninn af yfirkokki Earth Lagoon Mývatn, Tom Pops, og eiginkonu hans, Caity McNally, sem starfar einnig með Jarðbaðateyminu. Hjónin koma inn með fjölbreytta reynslu og alþjóðlegan bakgrunn en Tom er frá Póllandi og Caity er frá Skotlandi. Jarðböðin segja að þau hafi sett saman spennandi matseðil sem sameinar íslensk hráefni og áhrif frá Asíu, Mið-Austurlöndum og fleiri svæðum. Sjá einnig Jarðböðin opna á ný eftir um­fangs­miklar fram­kvæmdir Veitingastaðurinn mun einnig bjóða upp á fljótlega valkosti fyrir gesti sem hafa skemmri tíma, það er að segja súpur, samlokur, salöt, kaffidrykki og léttari veitingar. Guðmundur Þór Birgisson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna við Mývatn, segir að veitingastaðurinn sé rökrétt framhald af upplifun í lóninu og að áhersla verði lögð á að endurspegla sömu gildi og lónið sjálft. „Maturinn er stór þáttur í því hvernig fólk man staði sem það heimsækir. Við viljum að gestir fari héðan með ríka tilfinningu fyrir Mývatni, ekki bara í gegnum vatnið og útsýnið, heldur líka í gegnum bragðið,“ segir Guðmundur.

Share this article