Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.8.2026 | 12:15 Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Himininn snarmyrkvaðist þegar sólin hvarf í skugga mánans um tveggja mínútna skeið. mbl.is/RAX Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 Um 125 þúsund manns eltu almyrkvann til landsins Fiskurinn hvarf í skammnættinu Þyrla lenti við Dynjanda: „Trúði ekki mínum eigin augum“ Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann Myndskeið: Breytti degi í nótt » Fleiri tengdar fréttir Ragnar Axelsson ljósmyndari (RAX) barðist í fyrradag við ókyrrð og óútreiknanlegt skýjafar á flugi yfir Vestfjörðum þar sem hann freistaði þess að gera almyrkvann ódauðlegan á forsíðu Morgunblaðsins. „Ég ætlaði ekkert að fljúga í fyrstu, af því að ég vissi að það væri vont veður yfir Vestfjörðum, en mér rann blóðið til skyldunnar,“ segir Ragnar. Hann hafði í fyrstu hugsað sér að fylgjast með myrkvanum frá Grænlandi, en ekkert varð úr þeim áætlunum þar sem skýjaspá var þar eins og á höfuðborgarsvæðinu. „Ég ákvað að fara, og við bróðir minn og sonur hans, sem erum allir flugmenn, lögðum af stað frá Tungubakka í Mosfellsbæ og enduðum á því að þurfa eiginlega að flýja undan skýjunum.“ Ragnar kemur úr mikilli flugmannafjölskyldu. Hann segir fjölskylduna gjarnan fljúga saman þegar vel stendur á. „Við erum flugmenn, og það fer helst enginn að sofa nema hlusta á flugvélamótor.“ Það reyndist þrautin þyngri að finna stað þar sem sást til sólar, enda var veðurspáin fyrir Vestfirði margbreytileg þennan dag. Fyrst héldu bræðurnir að Reykhólum, þar sem bjart hafði verið yfir um morguninn, en þegar þeir svifu að varð þeim ljóst að skýjað var orðið, og héldu því norðar eftir Vestfjörðum. Bræðurnir Sölvi og Ragnar Axelssynir koma úr mikilli flugmannafjölskyldu, sem kemur sér vel í ljósmyndastörfum. Ljósmynd/Axel Sölvason Nokkrar sekúndur í senn Í 7.000 feta hæð flugu þeir hring eftir hring á milli Bolafjalls og Patreksfjarðar og leituðu sífellt lengra út á meðan skuggi tunglsins yfir sólinni stækkaði með hverri mínútunni og skýin hrönnuðust sífellt þykkar upp yfir fjörðunum. Því þurftu flugmennirnir að leita hærra og lægra á mis til þess að ná sem bestu skoti af myrkvanum og halla flugvélinni um 45° til þess að ná mynd undan væng vélarinnar. „Þarna hef ég fjórar, fimm sekúndur til þess að taka myndina með því að halla vélinni 45 gráður, og verð einfaldlega að hitta, og stundum sé ég ekki sólina,“ segir Ragnar. Þegar deildarmyrkvinn stóð yfir var þunn skýjahula á himni, sem varði linsu myndavélarinnar fyrir ofbirtu sólar. mbl.is/RAX „Við vorum alveg í skýjunum og þurftum alltaf að hækka okkur og lækka, fara hundrað til tvö hundruð fet upp og niður á meðan skýin hrúguðust upp í kringum okkur, alltaf meira og meira. Það var ein og hálf mínúta þar sem við þurftum að taka hringi alveg á milljón, það gáfust fjórar eða fimm sekúndur til að taka myndina, ég smellti af margoft, og svo var bara að sjá hvernig þetta kæmi út.“ Ekki er nóg með það að skýin hafi hótað að spilla myndinni, heldur tók að hvessa allhressilega á meðan á almyrkvanum stóð svo flugmennirnir þurftu að glíma við ókyrrð og halda bæði flugvélinni og myndavélinni nógu stöðugri til þess að fanga mætti myrkvann á mynd, sem heppnaðist þó svo glæsilega. „Maður var kannski svolítið stressaður,“ segir Ragnar. „En maður fer ekki inn á völlinn til að tapa.“ Á þessari mynd líkist sólin demantshring að mati Ragnars, sem þakkar almættinu fyrir skýjahuluna. mbl.is/RAX Myrkrið svartara en síðast Sólmyrkvinn er sá þriðji sem Ragnar hefur myndað, en hann náði einstakri mynd af almyrkva á Atlantshafi milli Íslands og Grænlands árið 1986 sem æ síðan hefur prýtt sólmyrkvaumfjallanir hérlendis. Hann segir þennan myrkva um margt líkan þeim sem varð fyrir fjörutíu árum, fyrir utan það hversu niðdimmt varð á himnum þegar tungl gekk fyrir sólu í fyrradag. „Það varð allt í einu bara svartamyrkur uppi hjá okkur, og það var, eins og bróðursonur minn Axel sagði: „Vá, þetta er rosalegt.“ Hann trúði því ekki að það yrði svona dimmt,“ segir Ragnar, sem segir myrkrið hafa lagst yfir eins og hönd fyrir sólu í almyrkvanum 1986, en að það hafi gerst mun skyndilegar í ár og orðið mun dimmara. „Þetta var alveg ótrúlegt,“ segir hann. „Maður rétt sá grilla í fjöllin.“ Enga sólmyrkvalinsu þurfti til þess að mynda almyrkvann, enda er ljós sólar litlu bjartara en fullt tungl meðan á almyrkva stendur. Því er myrkrið sem sést í kringum almyrkvann ekki tilkomið vegna annars en þess að himinninn varð einfaldlega biksvartur á meðan á almyrkva stóð. „Ég vissi að það þyrfti ekki linsu þegar sólin fer á bak við tunglið, og það þýðir ekki að hafa neinn filter þá vegna þess að þá sést varla neitt,“ segir Ragnar. Á nokkrum myndanna er tunglið hins vegar ekki alveg búið að hylja sólu, og segir Ragnar skýjahuluna hafa bjargað því upp að vissu marki. „Ef ég hefði ekki haft skýjahuluna þá hefði það orðið allt of bjart, og myrkvinn sést alveg í gegnum hana. Hún er líka svolítið falleg, eins og málverk; sérstaklega á einni myndinni þar sem sólin er eiginlega eins og demantshringur.“ Þó að þrekvirki hafi unnist með því að mynda sólmyrkvann í fyrradag segist Ragnar ekki hafa verið sérlega stressaður yfir því hversu stuttur tímarammi gæfist, enda hafi mun knappari tími gefist til þess að mynda myrkvann árið 1986. „Sá stóð bara í fimm sekúndur, eða fjórar, og það var enn þá meira stress. Eftir það, þá stressar svona lagað mann ekkert lengur,“ segir hann. „Ég fór bara til þess að ná þessari einu mynd svona, og vissi að ég myndi ná kannski einni eða tveimur í viðbót, og það er ekkert annað sem skiptir máli.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 Um 125 þúsund manns eltu almyrkvann til landsins Fiskurinn hvarf í skammnættinu Þyrla lenti við Dynjanda: „Trúði ekki mínum eigin augum“ Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann Myndskeið: Breytti degi í nótt » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Varnaræfingin „Norður-Víkingur“ fer fram hér á landi í ágúst Stjóri City vildi lítið tjá sig Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vændiskaupabannið hingað til vindhögg ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Bankinn finnur fyrir samkeppni Ragna sendir boltann aftur til stjórnvalda Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Var alblóðugur á gangi í miðbænum Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Varnaræfingin „Norður-Víkingur“ fer fram hér á landi í ágúst Stjóri City vildi lítið tjá sig Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit „Þess vegna fer um mann ónotatilfinning“ Væntingar um að rannsókn verði felld niður Ragna sendir boltann aftur til stjórnvalda Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Var alblóðugur á gangi í miðbænum Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu vi

Share this article