Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrír skipaðir í rannsóknarnefnd um aðbúnað fósturbarna

Read Full Article →

Forsætisráðherra hefur skipað í nefnd til að kanna aðbúnað barna sem voru vistuð voru á vegum ríkis og sveitarfélaga á einkaheimilum. Lög um nefndina voru sett í júní. Þau taka til einkaheimila þar sem vörn voru vistuð fyrir atbeina stjórnvalda samkvæmt ákvörðun, samningi við opinberan aðila eða á grundvelli opinbers leyfis á tímabilinu 27. mars 1947 til 1. júní 2002. Með einkaheimili er átt við heimili í eigu eða umsjón einstaklinga eða lögaðila sem ekki eru opinberar stofnanir, þar á meðal fósturheimili. Mikið hefur verið fjallað síðustu misseri um aðstæður og meðferð á vist- og fósturheimilum þar sem börn voru vistuð. Menn sem vistaðir voru á Bakkakoti í æsku sögðu í fréttaskýringaþættinum Kveik í febrúar að þeir hefðu verið beittir margvíslegu ofbeldi þar. Síðan þá hafa fleiri stigið fram með svipaða sögu að segja af öðrum vistheimilum. Sigríður Hjaltested héraðsdómari verður formaður nefndarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu Stjórnarráðsins , og í henni verða einnig Arna Ír Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og Sigurður Örn Hektorsson geðlæknir. Áætlað er að hún starfi í að minnsta kosti þrjú ár og skili ráðherra skriflegri skýrslu um störf sín með rökstuddum niðurstöðum. Markmið rannsóknarinnar eru þríþætt: Að lýsa því kerfi sem var við lýði varðandi vistun barna á einkaheimilum og opinbert eftirlit með henni á því tímabili sem við á. Ef tiltekið heimili er tekið til skoðunar skal leitast við að staðreyna, eins og kostur er, hvort börn hafi meðan á vistun stóð búið við aðstæður eða sætt meðferð sem samrýmdist ekki gildandi reglum, viðmiðum eða almennum kröfum um velferð barna á þeim tíma. Að kanna hvort annmarkar hafi verið á því hvernig vistun var komið á, leyfisveitingum og opinberu eftirliti, eða viðbrögðum við upplýsingum og tilkynningum.

Share this article