Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hótar að flytja Paramount úr Hollywood

Read Full Article →

Paramount Skydance hefur um nokkurt skeið reynt að ganga frá kaupum á Warner Bros. Discovery, en málið hefur reynst fyrirtækinu mun erfiðara en það gerði ráð fyrir. Nú hefur David Ellison, forstjóri Paramount Skydance, sagt að fyrirtækið gæti flutt starfsemi sína frá Kaliforníu ef ekki næst sátt vegna samkeppnismálsins. Kaupin hafa mætt andstöðu frá stjórnvöldum sem hafa áhyggjur af því að samruninn veiti sameinuðu fyrirtæki of mikil áhrif yfir kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum. Paramount hefur hins vegar haldið því fram að kaupin muni styrkja fyrirtækið og gera því betur kleift að keppa við stóra tæknirisa í afþreyingu. Ellison hefur nú látið skoða mögulegan flutning Paramount frá Los Angeles til Tennessee eða Texas. Ef kaupin á Warner Bros. ganga eftir gæti flutningurinn einnig náð til starfsemi Warner Bros. Samkvæmt bandarískum fjölmiðlum hafa viðbrögðin í Kaliforníu verið hörð. Rob Bonta, dómsmálaráðherra ríkisins, hefur sakað Paramount um að reyna að setja þrýsting á stjórnvöld til að láta af andstöðu sinni við samrunann. Ummæli Ellisons hafa einnig orðið til þess að gagnrýni á kaupin hefur aukist. Hann hefur sjálfur haldið því fram að andstæðingar samrunans óttist að eitt fyrirtæki fái of mikil áhrif, en gagnrýnendur benda nú á að ákvörðunin um að flytja starfsemi úr Los Angeles sýni einmitt hversu mikil völd slíkt fyrirtæki gæti fengið. Á meðan heldur óvissan um kaupin áfram að kosta Paramount stórar fjárhæðir. Fyrirtækið þarf að greiða svokölluð tafagjöld eftir því sem lengra líður frá fyrirhuguðum lokadegi samrunans og gætu þau numið allt að sjö milljónum dollara á dag.

Share this article