Innlent | mbl | 14.8.2026 | 17:00 Forsetahjónin heimsækja Eistland Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, ferðast til Eistlands í næstu viku. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, fer ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni, í ríkisheimsókn til Eistlands í næstu viku. Það eru forseti Eistlands, Alar Karis, og eiginkona hans, Sirje Karis, sem bjóða til þessarar heimsóknar og er markmið hennar að styrkja góð tengsl Íslands og Eistlands. Í fylgdarliði forseta er Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ásamt opinberri sendinefnd. Samhliða ríkisheimsókninni fer viðskiptasendinefnd, leidd af Íslandsstofu, til Eistlands og tekur þátt í dagskrá með þarlendum fyrirtækjum, að því er fram kemur í tilkynningu. Forsetarnir funda í Tallinn Eistnesku forsetahjónin bjóða þau íslensku formlega velkomin til Eistlands á ráðhústorginu í Tallinn að morgni miðvikudagsins 19. ágúst. Í kjölfarið eiga forsetarnir fund í forsetahöllinni. Meðal annarra dagskrárliða er samtal um gervigreind um hádegisbil, þá verður snæddur miðdegisverður og síðdegis heimsækir forseti meðal annars þinghúsið í Tallinn og fundar með forseta eistneska þingsins, Lauri Hussar. Dagskrá dagsins lýkur svo með hátíðarkvöldverði í menningarmiðstöðinni í Laulasmaa. Á fimmtudaginn 20. ágúst, einmitt á endurreisnardegi sjálfstæðis Eistlands, tekur forseti Íslands þátt í hátíðarhöldum í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá þeim sögulegu tímamótum. Meðal dagskrárliða er fánahylling í Kuberneri-garðinum og heimsókn í sjónvarpsturninn í Tallinn en hann varð tákn um baráttu Eistlendinga gegn sovéskum hersveitum. Einnig verður sóttur hátíðarfundur eistneska þingsins og hóps eftirlifandi stjórnmálamanna sem samþykktu sjálfstæðisyfirlýsinguna árið 1991. Þar mun forseti Íslands flytja ávarp og fleira. Dagskránni lýkur svo föstudaginn 21. ágúst. Um morguninn heimsækja forsetahjónin menntaskóla sem notast við nýstárlegar kennsluaðferðir tengdar gervigreind og verða viðstödd hátíðlega athöfn á Íslandstorginu í Tallinn. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kveður við annan tón í viðræðunum Forsetahjónin heimsækja Eistland Víkingur – Þór/KA kl. 18, bein lýsing Grænlensk bók sigraði Bændur segja þvert nei við ESB Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ragna sendir boltann aftur til stjórnvalda Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Fimm ára landrisi í Öskju virðist lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Samúel hótað Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Kveður við annan tón í viðræðunum Forsetahjónin heimsækja Eistland Víkingur – Þór/KA kl. 18, bein lýsing Grænlensk bók sigraði Bændur segja þvert nei við ESB Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samúel hótað Umferðarslys á Fljótsheiði Ekki betur borgið innan ESB Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Samúel hótað Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna