Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýr þjóðarpúls: Ekki marktækur munur á fylkingum

Read Full Article →

Ekki er hægt að segja til um hvort fleiri ætli að segja já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok mánaðar samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Þjóðin tekur afstöðu 29. ágúst um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Í þjóðarpúlsinum sögðust 51,5% þeirra sem tóku afstöðu að þeir myndu velja já en 48,5% nei. Það er ekki tölfræðilega marktækur munur en vikmörkin eru 2,5 prósentustig. Af þeim sem svöruðu könnuninni voru 7% enn óákveðin og 1% vildi ekki svara. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru líklegri en fólk á landsbyggðinni til að segja já. Þá er stuðningur við framhald aðildarviðræðna meiri meðal háskólamenntaðra. Kjósendur stjórnarflokkanna og Vinstri grænna eru líklegri til að greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna en kjósendur stjórnarandstöðuflokkanna ólíklegri. Af þeim sem styðja ríkisstjórnina myndu 89% segja já í ágúst. Já-sinnar eru hins vegar aðeins 14% þeirra sem styðja ríkisstjórnina ekki. Svarendur vissari í sinni sök Nýi þjóðarpúlsinn var gerður dagana 1.–13. ágúst. Sé hann borinn saman við fyrri könnun sem gerð var dagana 12.–24. júní virðast Íslendingar nú ákveðnari í afstöðu sinni um hvað þeir ætli að velja. Í júní ætluðu 52% þeirra sem tóku afstöðu að segja já. Nei-sinnar voru hins vegar 48%. Gallup gerði einnig nýlega könnun fyrir hreyfinguna Áfram Ísland, sem berst fyrir því að Íslendingar velji nei í atkvæðagreiðslunni. Samkvæmt henni er enginn munur á fjölda þeirra sem ætla að segja já og nei. Alls völdu 46% aðspurðra já og sama hlutfall nei. Átta prósent voru enn óákveðin. Í nýjum þjóðarpúlsi var heildarúrtaksstærð 4.128. Þátttökuhlutfall var 41,9%. Vikmörk á hlutföllum já og nei eru 2,5 prósentustig.

Share this article