Viðskipti | mbl | 14.8.2026 | 19:20 Verðbólguvæntingar alls ekki á niðurleið Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Samsett mynd/Hallur Már/Golli Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Spá hækkun stýrivaxta » Fleiri tengdar fréttir Greiningardeild Íslandsbanka spáir 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta á miðvikudag. Aðalhagfræðingur bankans segir hvorki verðbólgu né verðbólguvæntingar hafa breyst til batnaðar frá því í maí. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að yfirlýsing peningastefnunefndar frá því í maí vegi þyngst í spánni. Frétt af mbl.is Spá hækkun stýrivaxta Verðbólguvæntingar ekki á niðurleið „Í maí sagði peningastefnunefndin að hún væri reiðubúin að herða peningalegt aðhald frekar ef þörf krefði, til þess að ná tökum á verðbólgu og verðbólguvæntingum. Hvorugt hefur breyst til batnaðar frá því þá,“ segir hann. Verðbólgan ætli að verða þrálátari í ár en Seðlabankinn hafi gert ráð fyrir. Þá séu verðbólguvæntingar, miðað við nýjustu mælingar, alls ekki á niðurleið og séu jafnvel að mjakast upp á við á sumum mælikvörðum. Jón Bjarki bendir á að hagkerfið sé vissulega að kólna og að ótvíræð merki sjáist um það á vinnumarkaði, íbúðamarkaði og í umsvifum. „Það er ekki kreppa og mig grunar að peningastefnunefndin meti það sem svo að hagkerfið þoli hærra vaxtastig án þess að það komi verulegt bakslag í hagkerfið í heild,“ segir hann. Frétt af mbl.is Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Óvissan hallar að hertum vöxtum Grunnspá Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vextir haldist óbreyttir eftir hækkunina fram á næsta vor. Jón segir óvissuna þó liggja fremur í þá átt að herða þurfi vextina enn frekar. „Með þessari vaxtahækkun, ef af verður, í næstu viku þá verður aðhaldsstigið orðið meira en það var í maí þegar þau töldu það vera of lágt og þyrftu að bregðast við.“ Þessar tvær vaxtahækkanir dugi vonandi samanlagt til að koma aðhaldinu á þær slóðir sem það var snemma á árinu. Í kjölfarið vonast hann til að verðbólguþrýstingur haldi áfram að minnka, að nefndin bíði þá átekta og taki til við að lækka vexti þegar líður á veturinn. Frétt af mbl.is Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Almyrkvinn ekki áhrifaþáttur Spurður hvort almyrkvinn 12. ágúst kunni að hafa áhrif á verðbólgumælingar og þar með á ákvörðun nefndarinnar segir Jón Bjarki Seðlabankann horfa í gegnum slík áhrif. „Það getur vel verið að við fáum aðeins meiri verðbólguþrýsting tímabundið í ágúst vegna þessa, sérstaklega í gegnum mælingar á flugverði, hótelgistingu og veitingastöðum. En það gengur til baka strax í september og það er engin ástæða til að bregðast við því,“ segir hann. „Það verður ekki áhrifaþáttur í ákvörðuninni sem slíkri og mælingin fyrir ágúst kemur ekki fyrr en nokkrum dögum eftir vaxtaákvörðunina þannig að þó að það hreyfi tímabundið verðbólgumælinguna þá er það enginn áhrifaþáttur í þessu,“ bætir hann við að lokum. Frétt af mbl.is Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Spá hækkun stýrivaxta » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ræður Þýskaland of miklu innan ESB? Sigurður Már Jónsson Demókratar á hraðferð til vinstri og Trump kætist Fleira áhugavert Umferðarslys á Fljótsheiði Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Samúel hótað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Bankinn finnur fyrir samkeppni Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Korda tekur til starfa í september Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Snerti taug í mörgum í salnum Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Happy Hydrate til nýrra eigenda Snerti taug í mörgum í salnum Brugðust þegar mest á reyndi Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Bankinn finnur fyrir samkeppni Creditinfo Group kaupir EveryData Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ræður Þýskaland of miklu innan ESB? Sigurður Már Jónsson Demókratar á hraðferð til vinstri og Trump kætist Fleira áhugavert Bankinn finnur fyrir samkeppni Fiskurinn hvarf í skammnættinu Umferðarslys á Fljótsheiði Fimm ára landrisi í Öskju virðist lokið Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Bankinn finnur fyrir samkeppni Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Korda tekur til starfa í september Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Snerti taug í mörgum í salnum Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Happy Hydrate til nýrra eigenda Snerti taug í mörgum í salnum Brugðust þegar mest á reyndi Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Bankinn finnur fyrir samkeppni Creditinfo Group kaupir EveryData Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs