Nýja vatnslögnin til Vestmannaeyja skemmdist þegar verið var að leggja hana. Vestmannaeyjabær vill ekki tjá sig um hvernig hún skemmdist. Fyrirtækið Subsea 7 sér um að leggja vatnslögnina en verkefnið var boðið út innan Evrópska efnahagssvæðisins. Byrjað var að leggja hana 4. ágúst en aðfaranótt sunnudags skemmdist lögnin. Verkefnastjóri Subsea 7 vildi ekki tjá sig um málið. Vestmannaeyjabær tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið í samráði við fyrirtækið að klára að leggja vatnslögnina í von um að hægt verði að nýta hana að einhverju marki. Það sé skynsamlegasta skrefið til þess að lágmarka frekari kostnað. Kostnaður vegna skemmdanna fellur ekki á Vestmannaeyjabæ, segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Hún ætlar ekki að tjá sig um forskýrslu sem gerð var um orsök og umfang tjónsins. Nýja lögnin er almannavarnalögn og er til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina til Vestmannaeyja. Sú lögn varð fyrir skemmdum eftir að akkeri togarans Hugins VE 55 hafnaði á henni í nóvember 2023. Leiðrétting: Í upprunalegri útgáfu var því haldið fram að lögnin hefði skemmst um borð í skipi Subsea 7. Hið rétta er að hún skemmdist við útlagningu.