Stór meirihluti svarenda í nýjum þjóðarpúlsi Gallup er ákveðinn í því hvert atkvæði þeirra ratar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við ESB í lok mánaðar. Þar af eru 42% sem segjast örugglega ætla að kjósa já og 41% sem segjast örugglega ætla að kjósa nei. Að auki eru 9% sem segjast líklega kjósa já og 7% sem segjast líklega kjósa nei. Í heildina eru örlítið fleiri sem segjast ætla að kjósa já en munurinn á milli fylkinga er ekki marktækur. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir það ekki koma á óvart að svo margir séu búnir að ákveða hvað þeir hyggist kjósa. Það sé stutt í atkvæðagreiðsluna og mikil umræða búin að vera síðustu mánuði. Hún segir þjóðarpúlsinn ekki gefa neina vísbendingu um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. „Hvert atkvæði mun skipta máli. Þetta er hnífjafnt. Þetta er ekki marktækur munur og bara algjörlega óljóst að mörgu leyti hvernig þetta fer,“ segir Vilborg Ása. Umræðan hörð og getur enn harðnað Hún segir umræðuna hafa harðnað og að margir veigri sér við því að taka þátt í henni. Sjálf leggur hún áherslu á að velja vandlega hvaðan hún sækir upplýsingar. „Það er mikið af góðu efni þarna úti, upplýsandi og fræðandi, sem fólk getur sótt í. En það er ákveðinn hluti [efnis] sem er til þess að æra óstöðugan.“ Hún útilokar ekki að umræðan harðni enn frekar þó að hún sé orðin ansi hörð nú þegar. „Vonandi ekki. Ég meina það er í lagi að takast á og svona en við viljum halda þessu á málefnalegum nótum.“ Stjórnmálafræðingur segir ekki koma á óvart að stór meirihluti kjósenda sé búinn að ákveða sig svo stuttu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún segir umræðuna harða en að mikið af góðu og upplýsandi efni sé í boði.