Innlent | mbl | 14.8.2026 | 20:55 Héraðssaksóknari má rannsaka Jón Óttar Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari. Setja bókamerki Landsréttur hefur staðfest að Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sé ekki vanhæfur til að rannsaka meint mútubrot og peningaþvætti Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns, meðan hann starfaði fyrir Samherja. Landsréttur staðfesti 31. júlí úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. júlí þar sem kröfu Jóns Óttars um að meðferð héraðssaksóknara á þætti hans í Samherjamálinu svokallaða yrði felld niður vegna meints vanhæfis embættisins og starfsmanna þess var hafnað. Frétt af mbl.is Kæru á hendur héraðssaksóknara vísað frá Starfaði hjá embætti sérstaks saksóknara Jón Óttar starfaði hjá embætti sérstaks saksóknara, forvera embættis héraðssaksóknara, á árunum 2009 til 2011 og hefur haft stöðu sakbornings í tveimur aðskildum málum vegna meintra brota í því starfi. Hófst það fyrra með kæru sérstaks saksóknara, Ólafs Þórs Haukssonar, sem nú gegnir stöðu héraðssaksóknara, til ríkissaksóknara 26. apríl 2012. Var það mál fellt niður af ríkissaksóknara þann 1. febrúar árið 2013. Árið 2025 hófst svo önnur rannsókn vegna ætlaðra brota Jóns Óttars í starfi hjá embættinu og er það nú til rannsóknar hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi að ákvörðun ríkissaksóknara. Frétt af mbl.is Héraðssaksóknari kærður til lögreglu Lögbundin aðkoma héraðssaksóknara Landsréttur bendir á að mikið þurfi að koma til svo dómstólar úrskurði að yfirstandandi rannsókn sé ólögmæt og henni skuli hætt. Grunur um brot í opinberu starfi hjá sérstökum saksóknara geti ekki leitt til vanhæfis við rannsókn og saksókn alls óskyldra mála. Aðkoma héraðssaksóknara að þeim málum afmarkist við lögbundnar skyldur embættisins, það er kæru og tilkynningar til ríkissaksóknara, skýrslugjöf hjá rannsakanda og umsögn um mögulega bótaskyldu ríkisins. Frétt af mbl.is Embættið opnaði skjalageymsluna Hófstillt viðbrögð Ólafs Jón Óttar vísaði einnig til viðbragða Ólafs Þórs Haukssonar héraðssaksóknara við umfjöllun fjölmiðla vorið 2025. Landsréttur taldi eðlilegt að hann tjáði sig um málið með hliðsjón af stöðu sinni og að ummælin hefðu verið „hófstillt og í samræmi við tilefnið“. Þá hefði Jón Óttar ekki bent á nein atvik eða ummæli sem tengdust rannsókn þessa tiltekna máls og bent gætu til þess að héraðssaksóknari eða starfsmenn embættisins hefðu ekki gætt óhlutdrægni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Albert skoraði í bikarsigri Fannst látin eftir gróðurelda í Króatíu Samtímalýsingar á Skaftáreldum árið 1783 Andri á skotskónum í fyrsta leik tímabilsins Héraðssaksóknari má rannsaka Jón Óttar Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra Bankinn finnur fyrir samkeppni Ekki betur borgið innan ESB Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sýn sektað um tvær milljónir Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Albert skoraði í bikarsigri Fannst látin eftir gróðurelda í Króatíu Samtímalýsingar á Skaftáreldum árið 1783 Andri á skotskónum í fyrsta leik tímabilsins Héraðssaksóknari má rannsaka Jón Óttar Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vændiskaupabannið hingað til vindhögg Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Var afhentur albönskum yfirvöldum Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sýn sektað um tvær milljónir Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna