Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 við Indónesíu

Read Full Article →

Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð norður af Flores-eyju í Indónesíu rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Upptök skjálftans voru á 10 kílómetra dýpi, 68 kílómetrum norðvestur af borginni Ende, samkvæmt jarðfræðistofnun Bandaríkjanna. Tveir stórir eftirskjálftar hafa orðið, 5,6 og 5,9 að stærð. Veður- og jarðfræðistofa Indónesíu hefur varað við möguleikanum á flóðbylgju í kjölfar skjálftans. Jarðskjálftar eru algengir við Indónesíu og nágrannaríki. Landið er staðsett í hinum svokallaða Kyrrahafseldhring, jarðskjálftabelti sem nær frá Nýja-Sjálandi, í gegnum Suðaustur-Asíu og Japan og meðfram vesturströnd Norður- og Suður-Ameríku. Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article