Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Þetta var epík, ég á ekki orð enn í dag“

Read Full Article →

Almyrkvinn 12. ágúst var risastór viðburður og um allt land fylgdist fólk með honum og fagnaði með ólíkum hætti. Einhverjir héldu sólmyrkvaboð og umkringdu sig sínum nánustu, sumir nutu náttúruundursins í einrúmi. Dæmi eru um að fólk hafi farið á skeljarnar þegar myrkrið dundi yfir og borið upp bónorð og enn aðrir ákváðu að heitbindast elskunni sinni á þessum magnaða degi. Á meðal þeirra sem giftu sig í myrkrinu var Aldís Lilja sem lét pússa sig saman við Einar Val. Tilkynning um viðburðinnn birtist á Facebook-síðu íbúa Álftaness sem hljóðaði svo: Við gömlu og ég, uppalinn Álftnessyngur og verðandi maðurinn minn sem bjó á Álftanesi í dágóðan tíma í gamla daga, við erum að fara að gifta okkur í fjöru fyrir neðan flóðhættuskiltið í almyrkvanum á eftir. Við værum mjög þakklát fyrir smá frið og ró á meðan þetta stendur yfir. Við erum með slatta af góðu fólki með okkur og goða sem setur upp smá eld í skál. Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 slógu á þráðinn til Aldísar og spurðu um uppátækið. Aldís segist elska æskuslóðirnar á Álftanesi og ekki síst ströndina. Hún segist lengi hafa haft áform um að ganga í það heilaga á þessum stað. Það sem ég vildi í lífinu var að gifta mig þar, þegar ég væri búin að finna þann rétta. Þetta var epík, ég á ekki orð enn í dag. Við erum öll eiginlega enn að jafna okkur á þessu, þetta var svo yndislegt og fallegt. Þau voru umkringd ástvinum og ótrúlegri náttúrudýrð. Besta fólkið var með okkur og þau gerðu allt æðislegt fyrir okkur. Svo bara jörðin, sólin og hafið. Orð fá þessu ekki lýst, þetta var yndislegt. Athöfnin fór fram þannig að hjónin gengu niður í fjöru með goðanum. „Svo var athöfnin hafin og goðinn sagði falleg orð úr Hávamálum og slíkt. Við skiptumst á hringum, horfðum með fólkinu okkar út á haf. Það varð dimmt og þetta var geðveikt. Það voru allir með gæsahúð,“ segir Aldís Þetta var ótrúlegt, fuglarnir líka. Allt varð rólegt. Þetta var yndislegt. Við svífum ennþá og höldum áfram að svífa. Aldís Lilja og Einar Valur játuðust hvort öðru í fjörunni á Álftanesi meðan almyrkvinn var. Aldís segir það hafa verið afar töfrandi stund og að meira að segja fuglarnir hafi þagnað.

Share this article