Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gjaldskrá Íslandspósts taki mið af raunkostnaði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 15.8.2026 | 8:30 Gjaldskrá Íslandspósts taki mið af raunkostnaði Í greinargerðinni er bent á að sama verðskrá fyrir bréf allt að 50 grömm að þyngd gildi um land allt, enda sá kveðið á um það í lögum um póstþjónustu. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Í greinargerð Íslandspósts til Byggðastofnunar þar sem fjallað er um þær hækkanir á póstburðargjöldum sem gengu í gildi um síðustu mánaðamót kemur fram að hækkun á póstburðargjaldi bréfa í algengasta flokknum, þ.e. 0-50 gramma bréfum, sé 4,3%. Aftur á móti hækkar gjaldið fyrir bréf í þyngdarflokknum 51-250 grömm um 4,7% og verður eftir hækkun 445 krónur og gjald fyrir bréf í 251-2.000 gramma flokki um 4,9% og verður 755 krónur. Í greinargerðinni er bent á að sama verðskrá fyrir bréf allt að 50 grömm að þyngd gildi um land allt, enda sá kveðið á um það í lögum um póstþjónustu. Sama verðskrá er um allt land í hinum þyngdarflokkunum tveimur, enda segir Íslandspóstur ekki forsendur til að skipta verðskránni upp eftir svæðum þar sem fjöldi bréfa í þeim þyngdarflokkum sé lítill. Gjaldskráin skuli vera auðskiljanleg Svokölluð alþjónusta felur í sér að sama póstburðargjald sé um land allt, án tillits til þess kostnaðar sem til fellur við að koma bréfum til viðtakenda. Lög mæla fyrir um að sá sem veitir alþjónustuna, þ.e. Íslandspóstur í þessu tilviki, skuli senda Byggðastofnun fullnægjandi rökstuðning fyrir þeim breytingum sem gerðar eru á gjaldskrá innan alþjónustunnar. Segir að í lagaákvæðinu þar sem mælt er fyrir um þetta sé enga skýringu að finna á því hvað teljist fullnægjandi rökstuðningur. Aftur á móti sé sú leiðbeining gefin í greinargerð með ákvæðinu að breytingin skuli vera í samræmi við lögbundnar meginreglur um póstþjónustu. Í greinargerðinni eru tilfærðar þær meginreglur sem líta skuli til í þessu efni. Þær eru að gjöld fyrir alþjónustu skuli vera viðráðanleg fyrir notendur og gjaldskrár skuli taka mið af raunkostnaði að viðbættum hæfilegum hagnaði. Gjaldskráin skuli vera auðskiljanleg og jafnræðis skuli gætt sem og gagnsæis. Segir að samhliða fækkun bréfa hafi verið dregið talsvert úr umsetningu Íslandspósts, m.a. með lokun hefðbundinna afgreiðslustaða og uppsetningu póstboxa í staðinn, dreifingu hafi verið breytt, starfsmönnum fækkað o.fl. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gjaldskrá Íslandspósts taki mið af raunkostnaði Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Óvænt skref hjá Steven Gerrard Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samúel hótað Bankinn finnur fyrir samkeppni Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Kirkja afhelguð og fer í fóstur Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Gjaldskrá Íslandspósts taki mið af raunkostnaði Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Óvænt skref hjá Steven Gerrard Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Kirkja afhelguð og fer í fóstur Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna

Share this article