Innlent | Morgunblaðið | 15.8.2026 | 9:00 Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Hvalskurður Nú stendur hvalvertíðin sem hæst og unnið er hörðum höndum að hvalskurði í hvalstöðinni í Hvalfirði. Morgunblaðið/Eggert Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Eigandi Bandero hefur ekki svarað Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Bandero ekki lengur haldið á lokuðu svæði Bandero fært úr Sundahöfn Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar » Fleiri tengdar fréttir „Ég er ekki löglærður maður, en við höfum óskað eftir því við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu að fá afrit af þeim gögnum sem varða þetta mál, yfirheyrslur og annað,“ segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í samtali við Morgunblaðið en hann segir að sú málaleitan hafi engan árangur borið. Hafi lögreglan borið því við að Hvalur hf. væri ekki aðili málsins og því yrðu gögnin ekki afhent. Eftirfarandi skeyti sendi Kristján lögreglunni: „Fyrir hönd Hvals hf. sem brotaþola auk áhafnar í svokölluðu Bandero-máli óska ég eftir afriti af öllum rannsóknargögnum. Jafnframt óska ég sérstaklega eftir upplýsingum um brot við hvaða ákvæðum eru til rannsóknar. Þá óska ég jafnframt sérstaklega eftir upplýsingum um eignarhald og skráningarvottorð skipsins.“ „Ekki beinn aðili málsins“ Eftir að fyrirspurnin hafði verið ítrekuð fékkst svar frá lögreglunni sl. fimmtudag þess efnis að þau svör hefðu fengist hjá „ákærusviði að Hvalur fái ekki gögn að svo stöddu, enda ekki beinn aðili málsins“. „Við eigum erfitt með að vita hvað er þarna í gangi. Við höfum óskað eftir því allt frá 4. ágúst sl. að fá afrit af rannsóknargögnum málsins, en lögreglan svaraði því að við fengjum þau ekki að sinni þar sem við værum ekki aðilar málsins. Það þykir okkur mjög skrýtið,“ segir Kristján. Það sem hann vísar hér til eru gögn sem varða yfirheyrslur lögreglunnar yfir skipverjum bátsins Bandero sem nú liggur í Reykjavíkurhöfn. Svo sem kunnugt er fóru liðsmenn Landhelgisgæslunnar ásamt sérsveitarmönnum lögreglunnar um borð í bátinn, tóku yfir stjórn hans og handtóku áhöfnina. Hluti áhafnarinnar er nú farinn úr landi á grundvelli brottvísunar Útlendingastofnunar, en eftir því sem best er vitað hafa ákærur ekki verið gefnar út á hendur skipverjum, þrátt fyrir að þeir hafi gert tilraun til að stefna lífi skipverja á Hval 9 í hættu með framferði sínu í lok síðasta mánaðar, en ætlunin var að sigla hvalbátinn niður. Kristján segir að lögreglan hafi einnig tekið skýrslur af áhöfninni á Hval 9. Kristján Loftsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson Enn hægt að kæra Kristján er ekki sáttur við viðbrögð lögreglunnar og segist ekkert botna í þeim. Hann segir að sér skiljist að hægt sé að kæra skipverja á Bandero komist lögreglan að þeirri niðurstöðu að brot hafi verið framin, jafnvel þótt þeir séu farnir úr landi. Þeir séu þ.a.l. ekki sloppnir undan réttvísinni, enda þótt farnir séu af landi brott. „Mér skilst á mínum ráðgjöfum að hægt sé að ákæra þessa menn síðar og þótt þeir séu farnir úr landi. En við erum svekktir yfir því að lögreglan segi að við séum ekki aðilar að málinu og fáum því engin gögn,“ segir Kristján. Bandero liggur við bryggju og bíður Samgöngustofa tiltekinna gagna sem skortir svo unnt verði að gefa út haffærnisskírteini fyrir bátinn. Á meðan safnast upp hafnargjöld. „Ef þeir geta ekki haft bátinn í lagi og leyst hann út þá sýnir það svart á hvítu að þetta lið er fjársvelt og hefur enga peninga, þótt þeir láti annað í veðri vaka,“ segir Kristján. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Hvalveiðar Eigandi Bandero hefur ekki svarað Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Bandero ekki lengur haldið á lokuðu svæði Bandero fært úr Sundahöfn Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » 38 látnir eftir jarðskjálftann Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Gjaldskrá Íslandspósts taki mið af raunkostnaði Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Var afhentur albönskum yfirvöldum Norskir bændur fylgjast með ESB-umræðu á Íslandi ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Fiskurinn hvarf í skammnættinu Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Kirkja afhelguð og fer í fóstur Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » 38 látnir eftir jarðskjálftann Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Gjaldskrá Íslandspósts taki mið af raunkostnaði Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Norskir bændur fylgjast með ESB-umræðu á Íslandi Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Vændiskaupabannið hingað til vindhögg Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Kirkja afhelguð og fer í fóstur Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna