Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sextán ára drengur lést í busavígslu í Danmörku

Read Full Article →

Sextán ára drengur lést eftir að hafa verið stunginn með hnífi, í árlegri busavígslu, í dönsku borginni Hróarskeldu í gærkvöldi. Jafnaldri hans hefur verið handtekinn og verður ákærður fyrir morð. Í tilkynningu frá Himmelev-skólanum segir að nemendum og kennurum verði boðið upp á áfallahjálp í dag en drengurinn sem lést var nemandi við skólann. Lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Drengurinn var stunginn nokkrum sinnum bæði í bak og bringu. Hann var fluttur á sjúkrahúsið í Kaupmannahöfn þar sem hann lést af sárum sínum. Í tilkynningu frá dönsku lögreglunni segir að ástæða árásarinnar séu átök milli drengjanna. Sá handtekni hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10.september. Hann neitar sök.

Share this article