- What: Archaeological discovery of a Viking-era artifact
- Impact: Historical significance in Seyðisfjörður
Innlent | Morgunblaðið | 15.8.2026 | 15:20 Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? Nær öruggt er að hér sé komið spjót Bjólfs hins norska sem nam Seyðisfjörð í fyrndinni. Ljósmynd/Antikva Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er mjög óvenjulegur fundur. Vopn frá þessum tíma finnast mun oftar í kumlum en inni í skálum eða veggjum þeirra og því um einstaklega skemmtilega viðbót að ræða við þann mikla gripafjölda sem þegar hefur komið úr rannsókninni í Firði.“ Þetta segir Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur og stjórnandi margra ára umfangsmikillar fornleifarannsóknar í Firði í Seyðisfirði. Hún hefur verið sem grár köttur á síðum Morgunblaðsins undanfarin ár, einkum vegna þess að hún telur sig hafa fundið norska landnámsmanninn Bjólf í bátskumli undir fjallinu Bjólfi í september 2021. Nú er merkilegur gripur fundinn inni í vegg sem verið er að endurhlaða og sem Ragnheiður segir er fundurinn í meira lagi óvenjulegur frá sjónarhóli fræða hennar. Lítill hörgull hefur verið á fréttum af þessari umfangsmiklu fornleifarannsókn sem afhjúpað hefur mannvistarleifar í Firði allt frá 10. og fram á 20. öld en Ragnheiður og samstarfsfólk hennar hafa frá upphafi rannsóknarinnar árið 2020 fundið þar skála frá um það bil 940 til 1100, fjögur kuml með beinum manna og dýra auk um 5.000 gripa ýmiss konar sem lagst hafa á eitt við að opna dyr aftur í gráa forneskju með aðferðum fornleifafræðinnar. Skagfirðingurinn Helgi Sigurðsson hjá Fornverki býr yfir yfirburðaþekkingu á torfhleðslum fornum. Ljósmynd/Antikva Hverfa til víkingaaldar Nú stendur yfir vinna við að ganga frá skálanum sem Ragnheiður gróf upp á tímabilinu 2022 til '24 en ákveðið hefur verið að grafa veggi hans ekki í burtu heldur varðveita þá að mestu leyti, endurhlaða þar sem þarf og gera svæðið aðgengilegt heimamönnum og ferðamönnum. Munu upplýsingaskilti um rannsóknina og sögu staðarins svo líta dagsins ljós og svæðið gert þannig úr garði að gestir geti horfið aftur til víkingaaldar í huganum. „Það var mín hugmynd fyrir þremur árum, þegar ég sá að hægt væri að færa einn af varnargörðunum, að gera þetta aðgengilegt og í vor fékkst styrkur frá umhverfisráðuneytinu til að endurhlaða veggina,“ heldur Ragnheiður áfram. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur segir fund spjótsins í Firði stórmerkilegan. Ljósmynd/Austurfrétt/Gunnar Gunnarsson Minjastofnun Íslands hefur umsjón með þessum hluta framkvæmdarinnar og er Ragnheiður ráðgjafi við það starf en eins og áður hefur komið fram var fornleifarannsóknin á svæðinu unnin vegna framkvæmda við snjóflóðagarða á vegum Ofanflóðasjóðs, Framkvæmdasýslu ríkisins og Múlaþings. Til endurhleðslu veggja skálans voru hleðslumenn frá Fornverki ehf. fengnir og er það enginn annar en einn fremsti torfhleðslumeistari landsins, Skagfirðingurinn Helgi Sigurðsson, sem fer fyrir því verki en þess er skemmst að minnast er hann hlaut Europa Nostra-verðlaunin, virtustu menningararfsverðlaun Evrópu, í flokknum „Fræðsla, þjálfun og færni“. Kveikjan að þessu viðtali er gripur sem Finnur Eiríksson frá Djúpadal í Skagafirði, einn samstarfsmanna Helga, fann í elsta vegg skálans þegar þeir Fornverksmenn unnu að því að endurhlaða hann. Inni í veggnum reyndist spjót og er fundarstaðurinn í meira lagi óvenjulegur þar sem greftrunarsiðir þess tíma í sögunni, sem hér til skoðunar, gerðu ráð fyrir því að vopn manna væru lögð með þeim í grafir þeirra en athygli vakti, þegar kuml Bjólfs fannst, að vopn hans voru þar ekki. Má því leiða líkur að því að spjót landnámsmannsins sé nú fundið í þeim vegg skálans sem Helgi og samstarfsmenn hans voru nýverið að endurhlaða. Rannveig Þórhallsdóttir, doktorsnemi og aðstoðarrannsóknarstjóri, taldi Helga vera að gantast. Ljósmynd/Antikva Jafnaðargeð Skagfirðinga „Þetta er svo sem ekkert sérstaklega merkilegt,“ segir Skagfirðingurinn af kunnri hófsemi síns landshluta, „við vorum bara að endurgera veggi skálans. Nú hefur verið mjög mikill þurrkur og Finnur sér eitthvað þarna í gamla gólfinu sem var búið að grafa út og þegar hann fer að skoða þetta liggur þessi spjótsoddur bara þarna í yfirborðinu,“ segir Helgi og er spurður út í hvort jafnaðargeð hans sé slíkt að þessi fundur hreyfi ekki við blóðinu í æðum hans. „Jú jú, þetta er auðvitað stórmerkilegt,“ játar Skagfirðingurinn með semingi, harðmæltur að sið síns landshluta, „þetta var líka óvænt að sjá af því að við vorum ekkert búnir að vera að ganga þarna um en sólin og vindurinn hafa hreinsað ofan af þessu,“ segir hann enn fremur og mýkist allur eins og skáldið Bólu-Hjálmar sveitungi hans í bundnu máli Davíðs frá Fagraskógi í ljóði hans um ask skáldsins frá Bólu. „Veggir, eldstæði og setbekkir þar sem lokrekkjurnar voru á að vera sýnilegt og aðgengilegt gestum og við erum að ganga frá því núna,“ segir Helgi Sigurðsson hleðslumeistari að lokum sem Rannveig Þórhallsdóttir, aðstoðarstjórnandi rannsóknarinnar við hlið Ragnheiðar og doktorsnemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands, hélt hreinlega að væri að gantast þegar hann sagði af spjótsfundinum. „Þeir höfðu samband við mig hleðslumeistararnir og sögðust hafa fundið spjót í gólfinu, í vegg sem hafði hrunið,“ segir Rannveig, „þetta tilheyrir elsta skálanum í Firði og hann er byggður rétt eftir að 940 gjóskan féll en betur á eftir að fara yfir rannsóknargögn. Ef maður trúir eitthvað á Landnámu þá hlýtur þetta að vera Bjólfur sem fannst í bátskumlinu og spjótið því hans,“ segir Rannveig Þórhallsdóttir sem um þessar mundir er að vinna að grein um rannsóknina í Firði en áður hafa tvær greinar verið birtar af rannsókn fyrir austan sem segir okkur af lífi norskra landnámsmanna á Íslandi fyrir rúmum eitt þúsund árum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Hefur ekkert með það að gera“ Hlaupa sextíu kílómetra um Eyjafjörð Nýliðarnir styrkja sig Tafir á stækkun leikskóla á Ísafirði Á skotskónum með toppliðinu Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Annar stór skjálfti í Indónesíu Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Mest lesið Í gær Í vikunni Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Vissu að ekki yrði samið við ESB Fræsa hringveginn í gegnum Borgarnes Var afhentur albönskum yfirvöldum Leituðu manns sem var vopnaður rafbyssu Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » „Hefur ekkert með það að gera“ Hlaupa sextíu kílómetra um Eyjafjörð Nýliðarnir styrkja sig Tafir á stækkun leikskóla á Ísafirði Á skotskónum með toppliðinu Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tröllin mín eru hamingjusöm Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Fimm ára landrisi í Öskju virðist lokið Leituðu manns sem var vopnaður rafbyssu Mest lesið Í gær Í vikunni Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Vissu að ekki yrði samið við ESB Fræsa hringveginn í gegnum Borgarnes Var afhentur albönskum yfirvöldum Leituðu manns sem var vopnaður rafbyssu Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna