- What: A textile instructor shares her experience with a traditional craft
- Impact: No direct impact on IT or security
Innlent | Sunnudagsblað | 15.8.2026 | 15:49 Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Agatha Mist Atladóttir elskar alla handavinnu og kennir textílmennt í Stapaskóla. mbl.is/Eggert Jóhannesson Helga Kjaran Birgisdóttir [email protected] Setja bókamerki Agatha Mist Atladóttir gaf nýverið út bókina Perlusaum þar sem finna má upplýsingar um þessa fallegu handverksaðferð, myndrænar leiðbeiningar og hugmyndir. Agatha kennir textílmennt í Stapaskóla í Njarðvík og er í kennaranámi við Háskóla Íslands. Hún byrjaði að skoða perlusauminn þegar hún tók textíláfanga í náminu og varð þess fljótlega áskynja að lítið væri til á íslensku um þessa aðferð. „Ég hafði aldrei prófað að vinna með perlusaum áður, þó að ég hafi unnið með útsaum og ýmsar aðrar aðferðir. Ég byrjaði að prófa mig áfram í þessu og fannst þessi aðferð æðisleg, “ segir Agatha. Gullfiskur sem Agatha saumaði með perlusaumi. mbl.is/Helga Kjaran Birgisdóttir Hún ákvað að vinna ritgerð sína til B. Ed.-prófs um perlusaum og hvernig mætti nýta hann í textílkennslu í grunnskólum og hófst þá mikil rannsóknarvinna um handverkið. „Ég reyndi að finna eitthvað þessu líkt sem gefið hefur verið út hér á landi en fann í rauninni ekkert, “ segir Agatha. Hluti af sögunni Það kom Agöthu á óvart að ekkert væri til um perlusaumsaðferðina á Íslandi og ákvað hún því að gefa út sína eigin bók út frá rannsóknarvinnu sinni í sambandi við ritgerðina. „Það var greinilega vöntun á útgefnu efni með íslenskri leiðbeiningu. Perlusaumurinn kemur fram í þjóðbúningunum okkar og er hluti af sögunni. “ Agatha segir leiðbeinanda sinn í Háskólanum, Ásdísi Jóelsdóttur, hafa hvatt sig til að halda áfram með verkefnið og gefa bókina út. Mjög frjáls aðferð Til að byrja með fékk Agatha ákveðna nemendur í skólanum til að prófa perlusaum en fleiri og fleiri hafi síðan sýnt áhuga á aðferðinni og ákvað hún þá að leggja það fyrir sem verkefni í textíl. Perlusaumur er mjög frjáls aðferð. mbl.is/Helga Kjaran Birgisdóttir „Þau eru mjög áhugasöm og finnst þetta skemmtilegt, bæði stelpum og strákum, “ segir Agatha. „Þau fá að velja sér myndir sjálf svo þetta er mjög frjálst en það skiptir miklu máli að nemendur geti búið eitthvað til sem tengist þeirra áhugasviði. “ Hún leggur mikla áherslu á að nemendur hafi mikið frelsi í verkefnum sínum og segir t.d. að strákar sýni miklu meiri áhuga á handverki þegar þeir fá að velja sjálfir hvað þeir gera. Ítarlegt viðtal er við Agöthu í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ísland má ekki heltast úr lestinni Hetjan kynnt til leiks í París Three rivers passed the 2,000-salmon mark yesterday Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? „Hefur ekkert með það að gera“ Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögnin komin að landi en verður látin liggja Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Tröllin mín eru hamingjusöm Mest lesið Í gær Í vikunni Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Vissu að ekki yrði samið við ESB Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Fræsa hringveginn í gegnum Borgarnes Var afhentur albönskum yfirvöldum Leituðu manns sem var vopnaður rafbyssu Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Ísland má ekki heltast úr lestinni Hetjan kynnt til leiks í París Three rivers passed the 2,000-salmon mark yesterday Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? „Hefur ekkert með það að gera“ Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kirkja afhelguð og fer í fóstur Var afhentur albönskum yfirvöldum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Lögnin komin að landi en verður látin liggja Mest lesið Í gær Í vikunni Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Vissu að ekki yrði samið við ESB Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Fræsa hringveginn í gegnum Borgarnes Var afhentur albönskum yfirvöldum Leituðu manns sem var vopnaður rafbyssu Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna