Danska leyniþjónustan, PET, og FE, leyniþjónusta danska hersins, hafa varað við erlendum afskiptum í aðdraganda kosninga í Danmörku sem verða 24. mars næstkomandi. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem leyniþjónusturnar sendu frá sér í gær kemur fram að helsta ógnin sé talin vera rússnesk afskipti sem ætlað sé að hafa áhrif á kosningarnar vegna einarðs stuðnings Danmerkur við Úkraínu. Önnur erlend afskipti eru þó ekki útilokuð. Leyniþjónusturnar segja að markmið erlendra afskipta sé að sá fræjum sundrungar, hafa áhrif á almenna umræðu og beinast gegn ákveðnum frambjóðendum, stjórnmálaflokkum eða stefnumálum. Leyniþjónusturnar nefna sem dæmi að áhugi Bandaríkjanna á að yfirtaka Grænland hefur leitt til upplýsingaóreiðu um Danmörku, sem hefur skapað aðstæður sem Rússland og Kína gætu nýtt sér til frekari áhrifa. Mette Frederiksen forsætisráðherra boðaði til þingkosninganna á fimmtudaginn. Samkvæmt skoðanakönnun sem TV2 greindi frá í gær nýtur Jafnaðarmannaflokkurinn 21% stuðnings kjósenda, sem myndi tryggja flokknum meirihluta á þinginu. Fylgi flokksins nú er þó 6,5% lægra en í síðustu kosningum árið 2022. Fylgi flokksins hefur þó verið á uppleið síðustu vikur sem rakið er til vaskrar frammistöðu Frederiksen í málefnum Grænlands.
The Danish intelligence services PET and FE have warned of foreign interference, primarily from Russia, targeting the upcoming March 24th elections. The threat involves influence operations aimed at sowing discord, manipulating public discourse, and targeting specific candidates or political parties to undermine Denmark's support for Ukraine. The article cites disinformation campaigns related to U.S. interest in Greenland as a potential vector that Russia and China could exploit.