Innlent | mbl | 15.8.2026 | 18:08 Myndu mæta og „klára málið fyrir hádegi“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spyr hvort ríkisstjórninni sé alvara með að vilja halda niðri verðbólgu. mbl.is/Árni Sæberg Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir alla stjórnarandstöðuna tilbúna til þess að mæta til þingfundar í sumarfríinu og samþykkja heimildarákvæði fyrir fjármálaráðherra og ríkisstjórnina til að framlengja lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti rennur út um mánaðamótin og að öllu óbreyttu verður virðisaukaskattur á eldsneyti hækkaður aftur úr 11% í 24%. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafði orð á því í viðtali við RÚV í gær að ákvörðun um áframhaldandi lækkun á virðisaukaskatti þyrfti að bíða fram í miðjan september hið minnsta, þar sem slík ákvörðun krefjist aðkomu þingsins, sem nú er í fríi. Stjórnarandstaðan klár „Þetta mun hafa áhrif á vísitöluna, og kannski ætla þau bara að hafa það þannig. En ef ríkisstjórnin hefur raunverulegan vilja til að grípa til einhverra ráðstafana sem geta greitt fyrir lausn mála í aðdraganda viðræðna um kjarasamninga og annað þá myndum við mæta á þingfund og klára málið fyrir hádegi,“ segir Jón í samtali við mbl.is. Jón segir að við lagasetninguna hafi Sjálfstæðisflokkurinn ítrekað bent á að vissara væri að láta lækkunina gilda lengra inn í haustið svo þessi staða sem blasir nú við kæmi ekki upp. Þær breytingartillögur hafi ekki náð fram að ganga. Óheppileg tímasetning Aðspurður hvort hann telji dagsetninguna valda af einhverjum ásetningi segir hann það liggja fyrir að valin hafi verið dagsetning hættulega nálægt þeim tíma sem niðurstaða um forsendubrest kjarasamninga kæmi í ljós. „Og nú liggur fyrir að forsendur kjarasamningar muni bresta og það liggur fyrir að ríkisvaldið þarf að koma áfram að því að leysa málin til að ná verðbólgunni niður. Ef þeim er alvara með að reyna að halda þessu í skefjum og vinna gegn þessu þá er auðvitað ekkert mál að koma bara saman og klára þennan þátt í það minnsta,“ segir Jón. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ótrúlegur tíu marka sigur á Seltjarnarnesi Myndu mæta og „klára málið fyrir hádegi“ Spánverjar minnast sigurs á Márum „Ég er enn að klípa mig“ Farþegi kærður fyrir fjársvik Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fimm ára landrisi í Öskju virðist lokið Lögnin komin að landi en verður látin liggja Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Mest lesið Í gær Í vikunni Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Vissu að ekki yrði samið við ESB Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Fræsa hringveginn í gegnum Borgarnes Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Ótrúlegur tíu marka sigur á Seltjarnarnesi Myndu mæta og „klára málið fyrir hádegi“ Spánverjar minnast sigurs á Márum „Ég er enn að klípa mig“ Farþegi kærður fyrir fjársvik Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tröllin mín eru hamingjusöm Kirkja afhelguð og fer í fóstur Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? Annar stór skjálfti í Indónesíu Mest lesið Í gær Í vikunni Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Vissu að ekki yrði samið við ESB Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Fræsa hringveginn í gegnum Borgarnes Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna