Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

77 fórust í ferjuslysi

  • What: A ferry accident in Lake Kariba, Zimbabwe
  • Impact: At least 72 people died, 77 rescued
Read Full Article →

Fjölskyldur ganga fram hjá kistum látinna ástvina í minningarathöfn um fórnarlömb ferjuslyssins. Að minnsta kosti 114 farþegar voru um borð auk ótilgreinds fjölda barna.AP / Mkhululi Thobela Yfirvöld í Simbabve segja að fjöldi látinna í ferjuslysi á Kariba-vatni fyrir vikunni sé kominn upp í 72. 77 var bjargað. Ferjunni hvolfdi á þriðjudag í miklum öldugangi og enn er nokkurra leitað. Flestir farþeganna voru þorpsbúar og fiskkaupmenn sem búa við vatnið. Yfirvöld segja að ferjan hafi verið með leyfi fyrir 90 farþega, en að minnsta kosti 114 farþegar voru um borð, auk fimm manna áhafnar og ótilgreinds fjölda barna. Þetta er eitt mannskæðasta ferjuslys í sögu landsins.

Share this article