Það verður sannkallaður Evrópumótasunnudagur á RÚV í dag þegar þegar sýnt verður beint frá lokakeppnisdeginum á þremur Evrópumótum. Lokadagur EM í frjálsíþróttum fer fram í Birmingham, EM í sundi lýkur í París og síðasti keppnisdagur EM kvenna í áhaldafimleikum fer fram í Zagreb. Fyrsta beina útsendingin hefst snemma eða klukkan 06:25 frá maraþoni kvenna á EM í frjálsum. Klukkutíma síðar eða kl. 7:30 hefst maraþon karla þar sem Hlynur Andrésson verður meðal keppenda og sá síðasti af Íslendingunum átta til að keppa á mótinu. Hlynur hljóp á 2:15:30 klukkustundum í Kaupmannahafnarmaraþoninu í maí. Þar varð hann í 12. sæti og var þriðji Evrópumaðurinn í mark. Íslandsmet Hlyns er 2:13:37 klst. Alls eru 61 hlaupari frá 21 þjóð skráðir í maraþon karla. Maraþonhlaupin verða í beinni útsendingu á RÚV 2 . Enn eitt heimsmetið hjá Duplantis? Þessi lokakeppnisdagur EM í frjálsum býður upp á fjölda úrslitagreina og verða augu flestra væntanlega á sænska stangarstökkvaranum Armand „Mondo“ Duplantis . Duplantis, sem er ríkjandi Ólympíu- og heimsmeistari og heimsmethafi, stefnir nú að fjórða Evrópumeistaratitli sínum í röð. Svíinn hefur bætt heimsmetið í stangarstökki sentímetra fyrir sentímetra en hann fær greitt fyrir hvert heimsmet. Í dag stendur heimsmetið hans í 6,31 metra og setti hann það í mars á Mondo Classic-mótinu fyrir framan heimafólk sitt í Uppsölum í Svíþjóð. Ísland keppir í boðsundi karla Evrópumótinu í sundi lýkur einnig í dag í Ólympíusundlauginni í París. Íslenska sundfólkið lauk keppni í einstaklingsgreinum í gær en Ísland á enn eftir að synda í boðsundi. Íslenska karlasveitin keppir í 4x100 metra fjórsundi og hefjast undanrásirnar kl. 08:49 að íslenskum tíma í beinni útsendingu í spilaranum á ruv.is . Þessa rás er einnig hægt að horfa á í RÚV appinu. Keppni morgunsins verður sýnd beint á ruv.is en úrslitagreinarnar síðdegis verða í beinni á RÚV. Úrslitadagur fimleikakvenna í Zagreb Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum lýkur sömuleiðis í dag í Zagreb í Króatíu. Íslenska kvennalandsliðið lauk keppni í undankeppninni á fimmtudag og unglingalandsliðið keppti á föstudag. Ísland verður því ekki meðal þátttakenda í úrslitakeppni sunnudagsins. Fyrri hluti dagsins er helgaður úrslitum unglinga á einstökum áhöldum, en síðan tekur við einn af hápunktum mótsins þegar liðakeppni kvenna til úrslita fer fram. Úrslitakeppni fullorðinna er á dagskrá frá klukkan 13:55 í beinni útsendingu á RÚV. Íslensku fimleikakonurnar geta engu að síður verið ánægðar með ýmislegt frá mótinu. Sérstaklega vakti frammistaða Lilju Katrínar Gunnarsdóttur athygli en útreikningar að lokinni undankeppni benda til þess að hún hafi tryggt sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu.