Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Það er ekkert sem ég þoli verr en umburðarlyndið“

Read Full Article →

„Það er ekkert sem ég þoli verr en umburðarlyndið. Það þarf ekkert að umbera mig,“ segir Ragnhildur og staldrar svo við. „Ókei, kannski stundum en í þessu tilviki þarf það ekki,“ segir hún hlæjandi. Umræðan spratt af því þegar fólk segir að því sé alveg sama um að þessi eða hin séu hinsegin. „Auðvitað er þetta mest hugsunarleysi hjá vel meinandi fólki sem segir svona,“ segir Ragnhildur. „Þetta er vegna þess að fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu djúpt þetta liggur og þetta skiptir mann þessu máli, eðlilega, af því að fólk hefur aldrei þurft að berjast fyrir eigin tilveru. Þá auðvitað getur það ekki gert sér grein fyrir þessu. Út á það gengur öll þessi barátta okkar, að koma þeim skilningi á framfæri.“ Þú getur horft á umræðuna í spilaranum fyrir ofan eða allan þáttinn hér .

Share this article