Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer ekki í grafgötur með vanþóknun sína á þeim landsmönnum sem leggjast gegn því að draumar hennar um aðildarviðræður og síðar inngöngu í Evrópusambandið verði að veruleika. Fyrr á árinu lét hún til að mynda hafa eftir sér að það myndi hafa „afdrifaríkar afleiðingar fyrir almenning í landinu ef við segjum nei“ í viðtali við Heimildina. Í viðtali við Politico, sem komst fyrstur fjölmiðla á snoðir um tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, hélt hún áfram á sömu braut og sakaði suma af andstæðingum aðildarviðræðna um að afvegaleiða kjósendur með „kjaftæði“. Að sama skapi afgreiddi hún málflutning andstæðinganna sem hræðsluáróður. Samkvæmt nýrri Gallup-könnun munu jafn margir greiða atkvæði með og á móti aðildarviðræðum svo að það hlýtur að pirra utanríkisráðherra hve vel nei-liðum gengur vel í að „afvegaleiða“ almenning. Að sama skapi hlýtur hún að reyta hár sitt og skegg yfir ummælum ónefnds embættismanns framkvæmdastjórnar ESB sem segir berum orðum að Ísland muni vera nettógreiðandi í ESB og að hentugt verði að fá landið inn á sama tíma og Svartfjallaland, þar sem Ísland myndi í raun greiða fyrir aðild síðarnefnda landsins. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .