Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ávísun á leigumorðingja“

Read Full Article →

Innlent | Spursmál | mbl | 16.8.2026 | 10:53 „Ávísun á leigumorðingja“ Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Spursmál Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi ESB-regnhlíf, Guð launi þér og hver á Ísland? Fjölskylduboð í uppnámi, veiðiferðir klofnar Hvað hyggst Komið gott kjósa þann 29. ágúst? Írar vilja fá Ísland inn vegna eigin hagsmuna » Fleiri tengdar fréttir Ákvörðun um að láta erlendan mann, sem dæmdur var í 16 ára fangelsi fyrir manndráp, lausan áður en fullri afplánun var lokið og senda hann úr landi er að mati Óskars Magnússonar rithöfundar til þess fallin að senda stórhættuleg skilaboð út fyrir landsteinana. Hann gengur svo langt að segja fyrirkomulagið „ávísun á leigumorðingja“. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, tekur undir að málið sendi slæm skilaboð og gagnrýnir harðlega þá tímabundnu lagabreytingu sem gerði þessa framkvæmd mögulega. Frétt af mbl.is „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem þau ræða mál Angjelins Sterkaj, sem dæmdur var í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Armando Beqirai að bana fyrir utan heimili hans í Reykjavík árið 2021. Sigríður segir breytingu á lögum um fullnustu refsinga, sem samþykkt var í sumar, hafa verið ætlaða til þess að létta á yfirfullum fangelsum með því að heimila að erlendir fangar yrðu látnir lausir fyrr og sendir úr landi. „Þar með er það þar með ekki sagt, frá mínum bæjardyrum séð, að erlendir aðilar eigi þá ekki bara að sitja í fangelsinu og afplána sinn dóm,“ segir Sigríður. Hún telur þetta sérstaklega eiga við þegar um alvarleg ofbeldisbrot er að ræða. „Að mínu mati eiga þeir þá bara að sitja í fangelsinu og klára dóminn, að minnsta kosti þegar um er að ræða dóma fyrir jafn svívirðilega glæpi eins og hér um ræðir.“ Segir manninn hafa tengsl við Ísland Sigríður bendir jafnframt á að eitt af því sem lagt hafi verið til grundvallar þessari leið sé að erlendir fangar hafi ekki tengsl við Ísland. Hún segir það hins vegar ekki eiga við í þessu tilviki. „Það liggur bara fyrir í dómi Hæstaréttar að þessi viðkomandi maður hefur tengsl við landið,“ segir hún. Hún vísar meðal annars til þess að maðurinn eigi barn hér á landi og hafi gifst hér meðan hann afplánaði dóminn. Frétt af mbl.is „Þess vegna fer um mann ónotatilfinning“ Sigríður segir einnig umhugsunarvert ef staðan í fangelsiskerfinu eða fjárhagsleg sjónarmið séu farin að hafa áhrif á framkvæmd refsinga. „Þetta er auðvitað bagalegt ef að framkvæmdin, sérstaklega hjá Fangelsismálastofnun, er orðin þannig að þar er orðin einhver ákvörðunarástæða hvort að fangelsin séu full eða ekki, eða einhver svona peningaspursmál, þvert á kannski refsistefnu í landinu.“ Hún tekur þó fram að hún sé ekki almennt talsmaður harðari refsinga og telur ástæðu til að endurskoða þunga refsinga fyrir ýmis brot, meðal annars fíkniefnabrot. Ofbeldisbrot og morð séu hins vegar annars eðlis. „10 milljónir við samning“ Óskar tekur mun dýpra í árinni og segir framkvæmdina geta haft alvarlegar afleiðingar. „Þetta er náttúrulega alveg gjörsamlega til skammar,“ segir hann og vísar til þess að maður geti komið hingað til lands, framið morð, hlotið 16 ára fangelsisdóm en gengið út eftir aðeins hluta refsitímans. „Þetta er náttúrulega ávísun á leigumorðingja.“ Óskar dregur síðan upp sviðsmynd af því hvernig slík skilaboð geti virkað gagnvart skipulagðri brotastarfsemi erlendis. „Og þá færð þú bara leigumorðingja fyrir 30 milljónir. Það er 10 milljónir við samning, 10 milljónir við morð og 10 milljónir þegar þér er sleppt heim. Þetta er pakkinn. Og við erum bara að bjóða hérna upp á þetta, gjörið þið svo vel.“ Sigríður grípur þá inn í og segir slíkt fyrirkomulag vera „þekkt í löndunum í kringum okkur“. Óskar segir niðurstöðuna sýna „ævintýraleg lausatök“ þegar kemur að framkvæmd refsinga hér á landi. Tengdar fréttir Spursmál Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi ESB-regnhlíf, Guð launi þér og hver á Ísland? Fjölskylduboð í uppnámi, veiðiferðir klofnar Hvað hyggst Komið gott kjósa þann 29. ágúst? Írar vilja fá Ísland inn vegna eigin hagsmuna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ávísun á leigumorðingja“ Íslenska sveitin setti Íslandsmet í París Fórnaði lífi sínu til að bjarga hundinum Stjarnan semur við serbneskan risa 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Annar stór skjálfti í Indónesíu Óttast skerðingu á grunnþjónustu Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Heppinn spilari fékk rúmlega 800 þúsund krónur Frumsýning og sonur í sömu vikunni Kolrassa krókríðandi reimar á sig skóna Myndir: Kæfuísinn sló ekki í gegn Leiðrétta vankanta á reglum um ljósmæður Myndir: Þúsundir sameinuðust undir almyrkvanum Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Vissu að ekki yrði samið við ESB Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Segja kostnaðinn fimmfalt hærri „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » „Ávísun á leigumorðingja“ Íslenska sveitin setti Íslandsmet í París Fórnaði lífi sínu til að bjarga hundinum Stjarnan semur við serbneskan risa 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Versta umferðarslys Ungverjalands í 23 ár Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Óttast skerðingu á grunnþjónustu Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Mest lesið Í gær Í vikunni Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Heppinn spilari fékk rúmlega 800 þúsund krónur Frumsýning og sonur í sömu vikunni Kolrassa krókríðandi reimar á sig skóna Myndir: Kæfuísinn sló ekki í gegn Leiðrétta vankanta á reglum um ljósmæður Myndir: Þúsundir sameinuðust undir almyrkvanum Kirkja afhelguð og fer í fóstur Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Vissu að ekki yrði samið við ESB Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum Lögreglan segir Hval ekki málsaðila Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Segja kostnaðinn fimmfalt hærri „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna

Share this article