Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hæg hjöðnun verðbólgu

Read Full Article →

Tólf mánaðar verðbólga nemur 5,3% samkvæmt nýjustu mælingum, sem er langt yfir 2,5% lögbundnu verðbólgumarkmiði. Eftir að hafa staðið í 3,7% í nóvember sl. ári rauk verðbólgan hressilega upp á við í desember og janúar. Gjaldskrárhækkanir hins opinbera og hækkandi hrávöruverð sökum stríðsátaka við Persaflóa spiluðu stóru rullu í aukinni verðbólgu. Allt þetta ár hefur verðbólgan verið yfir 5%. Af svörum þátttakenda í markaðskönnun Viðskiptablaðsins að dæma mun verðbólgan mjakast hægt niður á við. Flestir þeirra, eða tæplega 60%, gera ráð fyrir að hún verði á bilinu 4% til 5% í lok árs. Rúmlega þriðjungur þátttakenda er öllu svartsýnni og spáir því að verðbólga verði á bilinu 5% til 6% í lok árs. Einn reiknar með að verðbólgan verði nær lögbundnu 2,5% markmiði og spáir 3% til 4% verðbólgu í lok þessa árs. Aftur á móti reikna tveir þátttakendur með að baráttan við verðbólguna muni engu skila og að hún mælist á bilinu 6% til 7% í lok árs. Könnunin var send á 288 markaðs- og greiningaraðila og bárust 80 svör sem jafngildir tæplega 28% svarhlutfalli. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article