Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dregur úr vindi og úrkomu en áfram svalt

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Dregur úr vindi og úrkomu en áfram svalt Ragnar Jón Hrólfsson Dregið hefur úr vindi og úrkomu síðan í gær. Búast má við suðvestan golu eða kalda og lítils háttar éljum á stangli. Bjart að mestu um landið austanvert. Frost verður á bilinu 0 til 10 stig en sums staðar sunnanlands verður frostlaust í dag. Á morgun tekur við norðan strekkingur við suður- og austurströndina en hægari vindur annars staðar. Snjókoma með köflum á Austurlandi og stöku él norðantil. Áfram fremur svalt í veðri. Úr Vigdísarrjóðri. RÚV / Kristófer Óli Birkisson NýttMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Ljós­móð­ir í 40 ár: Segir mæðrum alltaf að fylgja hjart­anu „Þetta er ekki einfalt og enginn er eins,“ segir Ingibjörg sem hefur starfað sem ljósmóðir í næstum 40 ár. Hún segir að það séu forréttindi að fá að taka á móti barni. Hún lauk nýverið störfum og haldið var málþing henni til heiðurs. NýttINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Erf­ið­ast að upp­lifa sig ekki ör­ugg­an í vinn­unni Atli Dagur Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítlans, greindist með berkla og deildi reynslu sinni í Kastljósi. Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ölv­að­ur maður vopn­að­ur mörgum hnífum hand­tek­inn Lögregla handtók í nótt mann sem ógnað hafði nágranna sínum og slegið til hans. Maðurinn var mjög ölvaður og reyndist vopnaður mörgum hnífum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Í dag: Verður tvö­falt Haukap­artí Ás­völl­um? Í dag fara fram bikarúrslit karla og kvenna í handbolta. Leikið er á Ásvöllum, heimavelli Hauka og eru þeir með lið í báðum úrslitaleikjum dagsins. Fyrst mætast Valur og Haukar í úrslitum kvenna og svo mætast Haukar og ÍR í úrslitum karla. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð Ísra­elar ráðast á Íran Ísrael hefur hafið árásir á Íran með því sem ísraelska varnarmálaráðuneytið segir vera fyrirbyggjandi aðgerðir gegn Íran. Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, hefur lýst yfir neyðarástandi um allt land, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Tilkynnt var um tvær stórar sprengingar í Tehran í Íran skömmu fyrir fréttir kl. 7. Ísraelsk yfirvöld hafa lokað loftrýminu yfir Ísrael fyrir farþegaflugi og viðvörunarkerfi fór af stað í Jerúsalem. Við munum segja nánari fréttir af stöðu mála um leið og þær berast á fréttavaktinni. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Finnland Met­fjölda dæmdra út­lend­inga vísað úr landi Brynja Dögg Friðriksdóttir YLE / Retu Liikanen Finnsk stjórnvöld vísuðu 169 einstaklingum af erlendum uppruna sem hlotið höfðu dóma frá Finnlandi á síðasta ári. Þetta er mesti fjöldi dæmdra einstaklinga af erlendum uppruna sem hefur verið vísað úr landi á einu ári og aukningin var þrjátíu prósent milli ára. Meirihluti þessa hóps var karlmenn og flestir voru Írakar, Eistar og Rússar. Finnar gerðu lagabreytingar á síðasta ári sem auðveldaði yfirvöldum að vísa fólki úr landi sem hefði brotið af sér. Þá hefur eftirlit með dvalarleyfum verið hert. Finnska ríkisútvarpið YLE greinir frá. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Trump ósátt­ur við sjón­ar­mið Írana Donald Trump Bandaríkjaforseti er óánægður með sjónarmið Írana í viðræðum landanna um kjarnorkusamning. Hann segist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort Bandaríkin ráðist á Íran. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bólivía 20 létust og tugir slös­uð­ust þegar her­flug­vél hrap­aði í lend­ingu á El Alto-al­þjóða­flug­vell­in­um Herflugvél bólivíska hersins hrapaði í lendingu í Bólivíu í nótt. Vélin var að flytja peningaseðla fyrir Seðlabanka Bólivíu. Varnarmálaráðuneyti landsins hefur enn lítið gefið upp um slysið eða fjölda látinna og slasaðra. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sýrland Ör­ygg­is­ráð SÞ af­nem­ur refsi­að­gerð­ir á víga­sveit­ir HTS Brynja Dögg Friðriksdóttir Ahmed al-Sharaa, forseti Sýrlands og fyrrum leiðtogi HTS. EPA / Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur afnumið refsiaðgerðir á vígasveitum HTS í Sýrlandi. Refsiaðgerðirnar voru upphaflega settar á HTS, Hayat Tahrir al-Sham, vegna tengsla við hryðjuverkasamtökin Al-Qaeda. Núverandi forseti Sýrlands, Ahmed al-Sharaa, var leiðtogi HTS þegar vígasveitirnar og aðrir uppreisnarhópar felldu ríkisstjórn Bashar al-Assad, fyrrum forseta Sýrlands, árið 2024. Stuttu eftir að al-Sharaa varð forseti sagði hann að uppreisnar hóparnir þar með talið HTS yrðu leystir upp. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna aflétti refsiaðgerðum á al-Sharaa í nóvember síðastliðnum. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Amor Vincit Omnia leikur lagið Ber Amor Vincit Omnia lék lagið Ber í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bill Clint­on hefur lokið vitna­leiðsl­um Clinton sagðist ekki hafa orðið vitni að neinu ólöglegu eða gert neitt ólöglegt sjálfur þegar hann var í samskiptum við Jeffrey Epstein. Fleiri bera vitni í Epstein-málinu á næstunni. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Al­var­legt spor­vagna­slys í Mílanó Brynja Dögg Friðriksdóttir Björgunarfólk að störfum á slysstað í Mílanó. AP/LaPresse / Stefano Porta Tveir létust og að minnsta kosti 38 eru slasaðir eftir að sporvagn fór af sporinu og klessti á hús í Mílanó á Ítalíu í gær. Svo virðist sem mannleg mistök hafi orsakað slysið en ökumaður sporvagnsins kveikti ekki á takka til að skipta um spor. Stuttu áður keyrði hann sporvagninn fram hjá stoppistöð án þess að stoppa. Sporvagninn er nýr og ökumaðurinn reynslumikill. Ökumaðurinn var fluttur á spítala með minniháttar áverka en hann sagði að hann hefði fundið til verkja áður en slysið átti sér stað. Samgöngumálaráðherrann Matteo Salvini harmar slysið og segir að það verði rannsakað. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Leyni­þjón­ust­ur vara við er­lend­um af­skipt­um í að­drag­anda kosn­inga Danska leyniþjónustan og leyniþjónusta danska hersins vara við erlendum afskiptum fyrir þingkosningar sem fara fram 24. mars. Helsta ógnin er talin vera rússnesk afskipti vegna stuðnings Danmerkur við Úkraínu. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Kenna í öllum krókum og kimum Verk­mennta­skól­ans á Ak­ur­eyri vegna pláss­leys­is Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri sitja kennslustundir í gluggalausum kjallara og aðrir úti á bílastæði vegna plássleysis. Mörg hundruð er vísað frá verknámi hérlendis á hverju ári. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp End­ur­koma Tóta úr Ís­lenska draumn­um Þórhallur Sverrisson sneri aftur í hlutverk athafnamannsins Tóta í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Ís­lensk­ar sjón­varps­þáttarað­ir kepp­ast um fjár­mögn­un á Seríes Mania Þáttaraðir byggðar á bókum Arnalds Indriðasonar um lögreglumanninn Konráð og Diplómati deyr eftir Elizu Reid verða kynntar fyrir fjárfestum á sjónvarpsþáttahátíð í Frakklandi í næsta mánuði. 27. febrúar 2026 kl. 21:30INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Stöðu- og fram­vindu­próf lögð fyrir grunn­skóla­börn á næstu vikum Á næstu vikum verða lögð fyrir stöðu- og framvindupróf í öllum grunnskólum landsins. Markmið prófanna er að fá betri mynd af stöðu hvers og eins, og kerfisins í heild. 27. febrúar 2026 kl. 21:13INNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Ætla að koma þessum mönnum úr landi Stjórnvöld ræða við Spán og Pólland um að taka við föngum þaðan, sem afplána hér á landi. Við ætlum að koma þessum mönnum úr landi, segir dómsmálaráðherra. 27. febrúar 2026 kl. 20:53ERLENDAR FRÉTTIR Austurríki Átak gegn vöru­skerð­ingu í mat­vöru­versl­un­um Þing Austurríkis samþykkti í vikunni lög um að merkja þurfi matvörur sérstaklega þegar innihaldið hefur verið minnkað en verðið ekki lækkað. Verslunareigendur sem ekki fara eftir þessu eiga yfir höfði sér sekt. 27. febrúar 2026 kl. 20:35INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fram­boðs­listi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fells­bæ sam­þykkt­ur Hilmar Gunnarsson leiðir lista Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ, en hann sigraði í prófkjöri flokksins í janúar. Annað sæti 27. febrúar 2026 kl. 20:22INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Reisa girð­ingu utan um Stuðla sem verða bara fyrir neyð­ar­vist­un og varð­hald Stuðlar verða eingöngu fyrir neyðarvistun og varðhald, eftir miklar breytingar á húsnæðinu. Há girðing verður reist utan um húsið. 27. febrúar 2026 kl. 19:56INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Verk­tak­inn ætlar að krefj­ast skaða­bóta Reykjavíkurborg sleit samstarfi við verktaka í Ölduselsskóla sem hætti samdægurs og fjarlægði allan öryggisbúnað. Verktakinn ætlar að leita réttar síns og krefjast skaðabóta. 27. febrúar 2026 kl. 19:15ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Segist ekki hafa haft neina hug­mynd um glæpi Ep­stein Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna segist ekki hafa vitað um glæpi kynferðisbrotamannsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. Hann ber vitni fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. 27. febrúar 2026 kl. 19:00INNLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa Hvort er holl­ara að smyrja með Smjörva eða Ber­tolli? Landspítali hætti í vikunni að kaupa Smjörva og kaupir nú ítalska viðbitið Bertolli, við heldur dræmar undirtektir netverja. Næringarfræðingur segir hvort tveggja gott í hófi og óhætt að fá sér eins og ofan á eina brauðsneið. 27. febrúar 2026 kl. 18:44INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Lítið fæst upp í 21 millj­arðs kröfur í Play Fyrsti skiptafundur þrotabús Play var haldinn í dag. Kröfum fyrir 21 milljarð króna hefur verið lýst í búið en ólíklegt er að nokkuð fáist upp í almennar kröfur. 27. febrúar 2026 kl. 18:27ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Net­flix vill ekki jafna tilboð Para­m­ount í Warner Bros. Allt stefnir í að Paramount taki yfir kvikmyndaframleiðandann Warner Bros. eftir að Netflix hafnaði því að jafna tilboð þeirra í fyrirtækið. Yfirvöld þurfa þó að samþykkja kaupin. 27. febrúar 2026 kl. 18:20INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Ósátt­ur við ár­ang­ur­inn og boðar að­gerð­ir Fjármála- og efnahagsráðherra segir unnið að aðgerðum til að sporna við þrálátri verðbólgu. Hann viðurkennir að árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum sé undir væntingum. 27. febrúar 2026 kl. 18:17INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Segir tilboð Ic­elandair byggj

Share this article