Gengill ehf. skrifaði á dögunum undir samning við Daga ræstingarfélag um innleiðingu á ræstingarvélmennum fyrir starfsemi félagsins. Samstarfið felur í sér að endurtekin verkefni á gólfi færast að hluta yfir á vélmenni sem sópa og skúra atvinnuhúsnæði. Arnór Hreiðarsson, stofnandi Gengils, segir að vélmennin geti unnið með meiri afköstum en einstaklingar. Sjálfur hefur hann víðtæka reynslu af rekstri, stefnumótun og innleiðingu tæknilausna fyrir íslensk fyrirtæki. „Ég stofnaði Gengil haustið 2025 og hef síðan þá flutt inn um 50 vélmenni frá Kína. Núna er ég að leggja inn pöntun fyrir 110 vélmenni til viðbótar og verð því vonandi kominn með 160 tæki til landsins fyrir árslok.“ Vélmennin sameina vélbúnað og hugbúnað þannig að hægt sé að kortleggja umhverfið, forðast hindranir og sinna endurteknum verkefnum með sjálfstæðum hætti. Arnór segir að aðaláherslan á íslenska markaðnum hafi hingað til verið á ræstingar en félagið sé einnig með vélmenni í rekstri á fleiri sviðum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .