Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlýjast á Norðurlandi í dag, allt að 20 stig

Read Full Article →

Búist er við lítilli úrkomu í dag sem verður nær eingöngu á suðvestanverðu landinu. Lægð úr suðvestri myndar lítilsháttar úrkomu, nær eingöngu á suðvestanverðu landinu. Skil lægðarinnar ná þó ekki inn á land. Bætir í vind, austan 5-10 m/s þegar þegar líður á daginn nokkuð víða og fer upp í 10-15 m/s syðst á landinu. Þokkalega hlýtt í dag, væntanlega hlýjast á Norðurlandi, allt að 19-20 stig. Á morgun fjarlægist lægðin og dregur úr vindi, helst mun blása með suðausturströndinni. Lítilsháttar væta á Austfjörðum og Suðausturlandi en aðrir landshlutar bjartir að mestu. Hiti á bilinu 13-18 stig yfir daginn en svalara við austurströndina. Á miðvikudag og fimmtudag er útlit fyrir rólegt veður, þurrt og milt. Um helgina virðist sem lægðir verði á sveimi við landið og bætir þá í vind með rigningu.

Share this article