Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Dugar sæti við borðið?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Dugar sæti við borðið? Bryndís Haraldsdóttir Setja bókamerki Aðsed grein úr Morgunblaðinu Við Íslendingar lítum stundum á okkur sem lítið ríki á jaðri Evrópu. Á norðurslóðum blasir önnur mynd við. Þar er Ísland enda ekki jaðarríki heldur eitt átta norðurslóðaríkja heims. Norðurslóðir hafa lengi verið eitt af mikilvægustu áherslumálum mínum í utanríkismálum. Ástæðan er einfaldlega sú að þar liggja gríðarlegir hagsmunir Íslands til framtíðar. Árið 2021 samþykkti Alþingi nýja stefnu Íslands í málefnum norðurslóða og stýrði ég þá þverpólitískri þingmannanefnd sem vann tillögurnar sem stefnan byggðist á. Þar var áhersla lögð á íslenska hagsmuni, Norðurskautsráðið sem mikilvægasta samstarfsvettvang svæðisins, sjálfbæra nýtingu auðlinda, efnahagstækifæri, öryggi og samstarf við nágranna okkar, ekki síst Grænlendinga og Færeyinga. Í stefnunni segir jafnframt að líta eigi vaxandi áhuga ríkja utan norðurslóða jákvæðum augum, svo lengi sem alþjóðalög og staða norðurskautsríkjanna átta séu virt. Það á jafnvel enn betur við í dag. Norðurslóðir í brennidepli Margt hefur breyst frá 2021, innrás Rússlands í Úkraínu kollvarpaði öryggisumhverfi Evrópu, loftslagsbreytingar hafa umbreytt norðurslóðum og siglingaleiðir, auðlindir, orka, fjarskipti og hernaðarlegt mikilvægi vekja sífellt meiri athygli. Bandaríkin, Kanada, Rússland og Kína horfa norður. Það gerir Evrópusambandið líka og vinnur nú að nýrri norðurslóðastefnu þar sem breytt alþjóðapólitískt umhverfi kalli á aukna áherslu á öryggis- og varnarmál, tengingar og efnahagslegt öryggi. Það er eðlilegt, enda hefur ESB mikilla hagsmuna að gæta á svæðinu. Ísland ætti sömuleiðis að eiga náið samstarf við sambandið í þessum efnum en þetta ætti ekki síður að vekja okkur Íslendinga til umhugsunar. Eitt af átta Ísland er eitt átta ríkja Norðurskautsráðsins ásamt Bandaríkjunum, Kanada, Rússlandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Konungsríkinu Danmörku með Grænlandi og Færeyjum. Fyrir tæplega 400 þúsund manna þjóð er þetta merkileg staða. Á alþjóðlegum vettvangi er hlutfallslegt vægi okkar óvíða jafn mikið og því hef ég sjálf fundið vel fyrir. Landafræðin gefur Íslandi vægi sem stærð þjóðarinnar ein og sér myndi aldrei gefa okkur. Það vægi verður ekki minna eftir því sem áhugi heimsins á norðurslóðum eykst. „Landafræðin gefur Íslandi vægi sem stærð þjóðarinnar ein og sér myndi aldrei gefa okkur.“ mbl.is/Árni Sæberg Sætið og umboðið Yrði Ísland aðili að ESB myndum við ekki hætta að vera norðurslóðaríki né sjálfkrafa missa sæti okkar í Norðurskautsráðinu, þvert á móti, Svíþjóð, Finnland og Danmörk eru öll bæði aðilar að ESB og Norðurskautsráðinu. Meginmunurinn felst hins vegar í umboðinu sem sætið veitir. Ísland er í dag sjálfstæður aðili að alþjóðasamningnum um að koma í veg fyrir stjórnlausar fiskveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins en þar fer Evrópusambandið með fyrirsvar aðildarríkja sinna. Þannig eru Svíþjóð og Finnland ekki sjálfstæðir samningsaðilar. Samkvæmt sáttmálum ESB hefur sambandið enda óskipt vald þegar kemur að verndun lífrænna auðlinda sjávar, þ.e. samkvæmt sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Aðildarríkin geta þó áfram talað fyrir eigin hagsmunum en fara ekki sjálf með samningsumboð á þeim sviðum sem ESB hefur slíkt vald yfir. Rétt er þó að halda til haga sérstöðu Konungsríkisins Danmerkur, sem er sérstakur aðili að samningnum fyrir hönd Grænlands og Færeyja, sem standa utan ESB. Fyrir Ísland skiptir þetta miklu, hagsmunir þjóðarinnar af auðlindanýtingu, hafinu og fiskistofnunum þess eru gríðarlegir. Það hvort sæti við borðið verði áfram merkt með íslenska fánanum skiptir okkur því ekki aðeins máli heldur það hver það er sem fer með íslenska umboðið við það borð. Tækifærin fram undan Ísland getur enn styrkt stöðu sína sem miðstöð þekkingar, rannsókna og alþjóðlegs samstarfs um norðurslóðir. Við getum byggt enn frekar undir öryggi, leit og björgun, fjarskipti, hafrannsóknir, orku og sjálfbæra auðlindanýtingu. Við höfum jafnframt einstakt tækifæri til að styrkja vestnorrænt samstarf við Grænland og Færeyjar, við eigum að halda áfram að vera brú milli samstarfsvettvanga sem öflugur aðili að NATO, þátttakandi í EES, norrænu og vestnorrænu samstarfi og, síðast en ekki síst, sjálfstætt norðurslóðaríki. Öflugt alþjóðlegt samstarf og sjálfstætt ákvörðunarvald eru ekki andstæður. Eftir því sem fleiri horfa norður verður mikilvægara að við vitum sjálf hvert við viljum stefna. ESB mótar sína stefnu. Önnur ríki móta sína. Og Ísland á að móta sína eigin stefnu út frá íslenskum hagsmunum. Við eigum nú þegar eitt af átta sætum við borðið en enn verðmætara er þó að þegar við setjumst í það sæti er umboðið íslenskt og röddin okkar eigin. Það er staða sem við eigum að byggja á til framtíðar og alls ekki gefa frá okkur. Þess vegna skiptir máli að segja nei 29. ágúst. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Harðorður í garð FIFA „Tilbúin til samtals við stjórnvöld“ Sá besti á HM fer til Katalóníu Aðsend grein: Dugar sæti við borðið? Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Umræðan Eitt lag enn Dugar sæti við borðið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta var svo ofboðslega sárt“ „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Mest lesið Í gær Í vikunni Segir mannát hreinan uppspuna Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa „Reyðarjárn“ úr langreyði Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Hiti allt að 20 stigum Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Nýjast á mbl.is » Harðorður í garð FIFA „Tilbúin til samtals við stjórnvöld“ Sá besti á HM fer til Katalóníu Aðsend grein: Dugar sæti við borðið? Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Umræðan Eitt lag enn Dugar sæti við borðið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Getur farið á hvorn veginn sem er Er spjót Bjólfs loks heimt úr jörðu? Óttast um skólabörn – 8.095 slys frá 2019 Þurfti að hætta sundi eftir 13 tíma vegna meiðsla Mest lesið Í gær Í vikunni Segir mannát hreinan uppspuna Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa „Reyðarjárn“ úr langreyði Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Hiti allt að 20 stigum Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys

Share this article