Innlent | mbl | 17.8.2026 | 11:58 | Uppfært 12:23 Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands Fíkniefnin voru falin í póstsendingu. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Tíu áfram í gæsluvarðhaldi Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Skipverjarnir játa sök Fjórir ákærðir: Földu efnið í vodkaflöskum Allir níu í fjögurra vikna gæsluvarðhald í viðbót » Fleiri tengdar fréttir Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karla og eina konu fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots árið 2024. Konan er á fimmtugsaldri og mennirnir á fertugsaldri. Fram kemur í ákærunni, sem var gefin út í júní, að þau séu öll ákærð fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á 1.039,69 grömmum af kókaíni með 88-89% styrkleika, ætluðu til dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fram kemur að fíkniefnin hafi verið falin í póstsendingu sem var póstlögð frá Frakklandi 26. ágúst 2024. Var sendingin skráð á annan mann. Stöðvuðu sendinguna í Frakklandi Tollayfirvöld í Frakklandi stöðvuðu sendinguna áður en hún var send til Íslands og tók lögreglan á Íslandi við sendingunni í Frakklandi, flutti hana til Íslands, fjarlægði fíkniefnin, kom fyrir gerviefnum og afhenti sendinguna. Fram kemur í ákærunni að konan hafi sótt sendinguna á pósthús í Síðumúla í Reykjavík 17. september 2024. Hún gekk með hana að Ármúla í Reykjavík þar sem hún afhenti öðrum manninum sendinguna. Sá maður hafði fengið upplýsingar um póstsendinguna frá hinum manninum á samskiptaforritinu Signal og miðlaði hann upplýsingunum svo til konunnar. Lögðu hald á efni og vopn Konan var enn fremur ákærð fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa í september 2024 haft í vörslum sínum 0,41 gramm af amfetamíni, 20 stykki Rivotril, 14 stykki Imovane, 14 stykki Pregabalin Accord og 40 millilítra piparúðabrúsa. Lögreglan lagði hald á efnin eftir að hafa stöðvað för hennar við Olís í Garðabæ og var hún handtekin. Annar mannanna var jafnframt ákærður fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa sama dag við Olís í Garðabæ haft í vörslum sínum 14,75 grömm af MDMA, sem lögregla lagði hald á við handtöku hans. Einnig fyrir vopnalagabrot og brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum með því að hafa, sama dag, á þáverandi heimili sínu í Reykjavík haft í vörslum sínum tvö gasvopn, tvö táragasvopn, tvö hnúajárn, rafmagnsvopn ásamt þremur hylkjum og átta eggvopn, 148 grömm af Metandrostenolon í töfluformi, 60 stykki af Anastrozol-töflum, 30 stykki 10 mg Tamoxifen-töflur, samtals 55,5 millilítra af anabólískum sterum í formi stungulyfs og eitt stykki HCG-stungulyfjaglas með anabólískum sterum. Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Tíu áfram í gæsluvarðhaldi Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Skipverjarnir játa sök Fjórir ákærðir: Földu efnið í vodkaflöskum Allir níu í fjögurra vikna gæsluvarðhald í viðbót » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » FH-ingar staðfesta félagaskipti Ídu Ekki leikur grunur á saknæmri háttsemi Verstu gróðureldar í Belgíu í heila öld Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands A powerful remedy for iron deficiency in humans Umræðan Eitt lag enn Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa „Ávísun á leigumorðingja“ Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Segir mannát hreinan uppspuna Andlát: Bogi Ísak Nilsson Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum Lögregluaðgerð á Króksfjarðarnesi Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Nýjast á mbl.is » FH-ingar staðfesta félagaskipti Ídu Ekki leikur grunur á saknæmri háttsemi Verstu gróðureldar í Belgíu í heila öld Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands A powerful remedy for iron deficiency in humans Umræðan Eitt lag enn Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dregur úr æfingum vegna sambandsins við Kim Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands Telur minni hita í umræðunni en í öðrum kosningum Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Segir mannát hreinan uppspuna Andlát: Bogi Ísak Nilsson Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum Lögregluaðgerð á Króksfjarðarnesi Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys