Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Boðar aukna hernaðarviðveru við Ísland

  • What: Discussion about increased NATO defense measures in Iceland
  • Impact: No direct impact on regular users
Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.8.2026 | 18:10 Hershöfðinginn boðar aukna hernaðarviðveru við Ísland Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Alexus G. Grynkewich yfirhershöfðingi NATO í ráðherrabústaðnum síðdegis. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Alexus G. Grynkewich, yfirhershöfðingi NATO í Evrópu, ræddi í dag við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um aukinn varnarviðbúnað Atlantshafsbandalagsins, stöðuna á norðurslóðum og varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna. Grynkewich er staddur hér á landi vegna varnaræfingarinnar Norður-Víkings, sem fram fer þessa dagana með þátttöku Íslands, Bandaríkjanna og fleiri bandalagsríkja. Lega Íslands gegni lykilhlutverki Grynkevich sagði m.a. í stuttu spjalli við fjölmiðla að lega Íslands gegndi lykilhlutverki í vörnum bandalagsins sem fyrr. Spurður hvort breytt landslag á alþjóðasviðinu gerði það að verkum að Ísland væri í viðkvæmari stöðu en áður og hvort föst viðvera herafla væri farsælli fyrir öryggi landsins sagði hann að svo væri ekki en engu að síður gætu Íslendingar átt von á aukinni hernaðarlegri viðveru á Íslandi. „Við höfum verið með viðveru við Ísland meira og minna samfellt undanfarið, bæði hvað varðar kafbátavarnir í Keflavík og flugvarnaeftirlit NATO-ríkja við Ísland. Hvað framtíðina varðar þá held ég að hernaðarleg viðvera við Ísland muni aukast, jafnvel þótt hér verði ekki varanleg herstöð þar sem herlið er staðsett til frambúðar. Ástæðan er sú að lega Íslands er gríðarlega mikilvæg frá hernaðarlegu sjónarmiði og því held ég að Íslendingar megi búast við aukinni hernaðarlegri viðveru við landið.“ Einn æðsti herforingi NATO Grynkewich er hershöfðingi í bandaríska flughernum og tók við embætti yfirhershöfðingja Atlantshafsbandalagsins í Evrópu, SACEUR, í júlí á síðasta ári. Hann tók þá við af Christopher G. Cavoli. Grynkewich er jafnframt yfirmaður Evrópuherstjórnar Bandaríkjanna. Embættið er eitt það valdamesta innan herstjórnar NATO. Grynkewich fer fyrir aðgerðastjórn bandalagsins og ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd hernaðaraðgerða þess. Hann er 21. maðurinn til að gegna embættinu en Dwight D. Eisenhower, síðar Bandaríkjaforseti, var sá fyrsti. Grynkewich er fyrrverandi orrustuflugmaður og gegndi áður embætti aðgerðastjóra bandaríska herráðsins. Undanfarið hefur hann meðal annars lagt áherslu á aukna ábyrgð Evrópuríkja og Kanada á hefðbundnum vörnum Evrópu, samhliða áframhaldandi stuðningi Bandaríkjanna. Ræddu breytt öryggisástand Meðal umræðuefna á fundum Grynkewich með ráðherrunum voru horfur í öryggismálum og aukinn varnarviðbúnaður NATO. Þá var rætt um þróun mála á norðurslóðum og vaxandi tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna. „Við áttum gott samtal um stöðuna í kjölfar leiðtogafundarins í Ankara og aukinn varnarviðbúnað bandalagsins nú þegar öll ríki eru að efla eigin getu til að mæta breyttu öryggisástandi. Við fórum einnig yfir náið og gott varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna,“ er haft eftir Kristrúnu Frostadóttur í fréttatilkynningu frá Stjórnarráðinu. Þorgerður Katrín sagði Ísland vera að takast á við nýtt landslag í öryggismálum. „Ísland hefur verið að vinna að því að styrkja eigin varnir og áfallaþol með markvissum hætti. Það var mikilvægt að eiga gott samtal við Grynkewich um þau mál og hvernig við eflum þátttöku innan Atlantshafsbandalagsins og styrkjum samstarfið við Bandaríkin enn frekar, ekki síst núna þegar Evrópuríkin og Kanada eru að auka framlag sitt,“ sagði Þorgerður Katrín. Kynnir sér öryggissvæðið í Keflavík Norður-Víking er tvíhliða varnaræfing Íslands og Bandaríkjanna. Í tilkynningu segir að meginmarkmið æfingarinnar sé að æfa varnir Íslands, meðal annars varnir mikilvægra innviða og sjóleiða umhverfis landið. Einnig er æfð leit og björgun, gistiríkjastuðningur og samhæfing íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og NATO. Um 150 til 200 íslenskir þátttakendur koma að æfingunni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi auk Atlantshafsbandalagsins. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Besta í beinni: Markaveisla á Hlíðarenda Nýliðarnir styrkja sig fyrir ensku úrvalsdeildina Boðar aukna hernaðarviðveru við Ísland „Eins og að vakna í Barbie-heimi á hverjum degi“ Í sjálfheldu milli Djúpalónssands og Dritvíkur Umræðan Eitt lag enn Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Verstu gróðureldar í Belgíu í heila öld Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Nýjast á mbl.is » Besta í beinni: Markaveisla á Hlíðarenda Nýliðarnir styrkja sig fyrir ensku úrvalsdeildina Boðar aukna hernaðarviðveru við Ísland „Eins og að vakna í Barbie-heimi á hverjum degi“ Í sjálfheldu milli Djúpalónssands og Dritvíkur Umræðan Eitt lag enn Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur minni hita í umræðunni en í öðrum kosningum Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys

Share this article