Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var tekjuhæsti Íslendingurinn í fyrra samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar, annað árið í röð. Samkvæmt útsvarsskyldum tekjum Árna var hann með ríflega 46 milljónir á mánuði árið 2025. Árið áður var hann með rúmlega 40 milljónir á mánuði. Tveir aðrir einstaklingar í úttekt Frjálsrar verslunar voru með meira en 30 milljónir á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublað Frjálsrar verslunar í forsölu hér . Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals var næstlaunahæstur en hann var með 39,5 milljónir á mánuði. Næst á eftir kom Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls. Miðað við útsvarsskyldar tekjur var hann með 33,5 milljónir á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér . Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.