Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda

Read Full Article →

Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Hún tók til starfa í byrjun ágústmánaðar og starfar fyrstu vikurnar samhliða Erni Pálssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, til að tryggja farsæla yfirfærslu þekkingar og verkefna. „Ég er mjög spennt fyrir starfinu fram undan og hlakka til að kynna mér betur allar hliðar starfseminnar við hlið Arnar, sem er hafsjór þekkingar og reynslu þegar kemur að málefnum smábátaeigenda,“ segir Bryndís. Hún segist þakklát fyrir tækifærið og bera mikla virðingu fyrir starfi Landssambandsins, sem og því umfangsmikla starfi sem Örn hefur unnið fyrir félagið um árabil. Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir ráðninguna mikilvægan liðsstyrk fyrir samtökin. „Styrkleikar Bryndísar á sviði verkefnastjórnunar og lögfræði eru mikilvæg viðbót í starf okkar fyrir smábátaeigendur. Þetta er viðamikið umhverfi að setja sig inn í og við erum heppin að hafa tækifæri til að láta reynsluna renna á milli kynslóða hjá þeim Erni og Bryndísi,“ segir Kjartan Páll. „Ég vil jafnframt þakka Erni fyrir hans miklu og góðu störf fyrir Landssambandið og hlakka til áframhaldandi samstarfs við nýjan framkvæmdastjóra.“ Bryndís er ekki með öllu ókunnug sjávarútvegi, enda alin upp á Höfn í Hornafirði. Þótt starfsvettvangur hennar hafi til þessa að mestu verið á öðrum sviðum nýtist fjölbreytt reynsla hennar vel í þeim verkefnum sem fram undan eru hjá Landssambandinu. Bryndís starfaði um árabil sem jökla- og gönguleiðsögumaður og var jafnframt um tíma umsjónarmaður fjallaleiðsögunámsins á Höfn. Undanfarin níu ár hefur hún starfað við verkefnastjórnun innan félagasamtaka og byggingargeirans, meðal annars á sviði öryggis- og gæðamála, samningagerðar og verkefna tengdum umhverfisvottunum. Síðast starfaði hún tímabundið sem verkefnastjóri öryggis- og gæðamála hjá SORPU. Bryndís lauk meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2020 og hefur undanfarin ár stundað meistaranám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst.

Share this article