Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fer­tram í nýtt hlut­verk eftir sterkara upp­gjör sára­með­ferðar

Read Full Article →

Guð­mundur Fer­tram Sigur­jóns­son, stofnandi Kerecis, hefur tekið við nýju hlut­verki hjá danska lækninga­vöru­fyrir­tækinu Colop­last eftir að hafa stýrt sára­með­ferðar­starf­semi sam­stæðunnar, Wound & Tissu­e Repair. Fer­tram lætur af dag­legri stjórn starf­seminnar og tekur við starfi Chief In­novation & Technology Advis­or, þar sem hann mun ráð­leggja Gavin Wood, for­stjóra Colop­last, um nýsköpun og tækni. Áhersla verður meðal annars lögð á lífrænar lækninga­vörur, þróaða sára­með­ferð og nýja tækni. Breytingin er að frumkvæði Fertrams, að því er fram kemur í uppfærðri frétt danska viðskiptablaðsins Børsen . Hann hafði starfað áfram hjá Coloplast lengur en upphaflega var gert ráð fyrir eftir kaup danska félagsins á Kerecis árið 2023. Fertram tekur við starfi Chief Innovation & Technology Advisor og mun þar vinna að nýsköpun Coloplast með sérstakri áherslu á lífrænar lækningavörur, þróaða sárameðferð og nýja tækni. Wood tekur sjálfur tíma­bundið við ábyrgð á Wound & Tissu­e Repair. Breytingarnar koma sam­hliða upp­gjöri Colop­last fyrir þriðja árs­fjórðung, þar sem niður­staðan var betri en greiningaraðilar höfðu gert ráð fyrir. Sára­með­ferðar­starf­semin, sem Kerecis er hluti af og Fer­tram hefur borið ábyrgð á, skilaði 3% vexti á fjórðungnum. Heildar­tekjur Colop­last námu 7,36 milljörðum danskra króna á fjórðungnum, saman­borið við tæpa sjö milljarða á sama tíma­bili í fyrra. Greiningaraðilar höfðu að meðaltali gert ráð fyrir 7,27 milljarða króna tekjum. Hagnaður nam 1,46 milljörðum danskra króna og jókst úr 805 milljónum frá sama tíma­bili í fyrra. Þar var niður­staðan einnig yfir væntingum greiningaraðila, sem höfðu spáð um 1,35 milljarða króna hagnaði. Lífrænn vöxtur Colop­last var 6% á fjórðungnum, saman­borið við 7% árið áður, og var einnig lítil­lega yfir 5,6% spá greiningaraðila. Félagið heldur óbreyttri spá um 5-6% lífrænan vöxt á árinu. Kerecis áfram mikilvægur hluti Colop­last keypti Kerecis árið 2023 fyrir um 175 milljarða íslenskra króna. Sára­með­ferðar­starf­semin hefur síðan verið undir smá­sjá fjár­festa vegna breytinga á endur­greiðslu­kerfi Medi­care í Bandaríkjunum. Óvissa vegna breytinganna varð meðal annars til þess að Colop­last lækkaði af­komu­spá sína fyrr á árinu og færði niður bók­fært virði Kerecis um þrjá milljarða danskra króna. Fer­tram verður áfram ná­tengdur Kerecis í nýju starfi. Sam­kvæmt Colop­last mun hann vinna að því að styrkja nýsköpun félagsins, meðal annars á sviði lífrænna vara og sára­með­ferðar, en losnar undan dag­legri rekstrarábyrgð. Samkvæmt Børsen hafði Fertram upphaflega skuldbundið sig til að starfa hjá Coloplast til loka september 2025 eftir sölu Kerecis. Hann ákvað hins vegar að halda áfram á meðan Coloplast var án fastráðins forstjóra og óvissa ríkti um breytingar á bandaríska endurgreiðslukerfinu. Fer­tram stofnaði Kerecis á Ísafirði og byggði fyrir­tækið upp í alþjóð­legt lækninga­vöru­fyrir­tæki áður en Colop­last keypti það árið 2023. Hann gekk þá til liðs við stjórn­enda­t­eymi danska félagsins og hefur síðan farið fyrir þeirri starf­semi sem Kerecis til­heyrir innan sam­stæðunnar.

Share this article