Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.8.2026 | 13:05 Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Á annan tug þúsunda greitt atkvæði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Telur minni hita í umræðunni en í öðrum kosningum » Fleiri tengdar fréttir Varnarmál Íslands „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ Varnaræfingin „Norður-Víkingur“ fer fram hér á landi í ágúst Milljarðar án sundurliðunar Myndir: HMS Prince of Wales í Hvalfirði » Fleiri tengdar fréttir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir nýjan veruleika blasa við Norðurlandaþjóðum vegna yfirlýsinga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um Grænland. Hún segir ábyrg stjórnvöld þurfa að endurmeta stöðu Íslands í öryggis- og varnarmálum og spyrja hvort hagsmunum landsins væri betur borgið innan Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í aðsendri grein ráðherrans í Morgunblaðinu í dag þar sem hún fjallar um öryggi Íslands í breyttum heimi en Þorbjörg hefur einnig birt greinina á Facebook-síðu sinni. Öryggi Íslands í breyttum heimi Ógn geti stafað af Bandaríkjunum Þorbjörg segir yfirlýsingar Trumps um að Bandaríkin muni ná yfirráðum yfir Grænlandi sýna að ógn geti nú stafað af Bandaríkjunum gegn öryggishagsmunum Norðurlanda. Hún vísar meðal annars til þess að Trump hafi nýverið sagt í sjónvarpsþætti að líkur væru á því að Bandaríkin tækju yfir Grænland á meðan hann gegndi embætti. Þá hafi hann birt mynd af sér gnæfandi yfir Grænlandi á dreifimiðli sínum. Tveimur dögum síðar hafi olíufyrirtæki frá Texas, sem ráðherrann segir hafa tengsl við fólk úr innsta hring Trumps, komið að austurströnd Grænlands með búnað til olíuleitar án samþykkis grænlenskra stjórnvalda. Frétt af mbl.is Kristrún: „Risastórt vandamál“ Frétt af mbl.is „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ Erfitt að standast hríð Trumps án ESB Þorbjörg segir viðbrögð Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, við yfirlýsingum Trumps hafa verið aðdáunarverð og bendir á að Danir hafi lagt áherslu á samstöðu Evrópuríkja í málinu. „Dönsk stjórnvöld hafa sagt að erfitt hefði verið að standast þessa hríð Bandaríkjaforseta vegna Grænlands ef þau hefðu ekki tilheyrt þeirri samstöðublokk sem Evrópusambandið er. Grænlendingar hafa ítrekað sagt að þeir velji samstarf við Danmörku og ESB fram yfir Bandaríkin,“ segir í grein ráðherrans. Þá segir Þorbjörg að nýr veruleiki blasi við Norðurlandaþjóðum og að Finnar og Svíar hafi þegar brugðist við breyttu öryggisumhverfi með inngöngu í NATO. Danir hafi einnig ákveðið að falla frá undanþágu sinni frá sameiginlegri varnarstefnu Evrópusambandsins. „Þannig bregðast ábyrg ríki við breyttum heimi. Þau endurmeta stöðuna.“ Frétt af mbl.is Trump enn með augun á Grænlandi Stjórnvöld verði að vera vakandi Hún tekur þó fram að Bandaríkin hafi verið eitt helsta bandalagsríki Íslands og að mikilvægt sé að viðhalda góðum samskiptum við Bandaríkin. „En þessi vinátta breytir því ekki að ábyrg stjórnvöld verða að vera vakandi vegna yfirlýsinga og aðgerða Bandaríkjanna.“ Þá segir ráðherrann jafnframt að Ísland þurfi að endurmeta stöðu sína í ljósi breyttra aðstæðna, eins og gert hafi verið áður. Hún vísar þar meðal annars til ákvörðunar Íslands um að ganga í NATO árið 1949 og viðbragða Íslands þegar Bandaríkin ákváðu árið 2006 að draga herlið sitt frá landinu. „Fullveldi felst ekki í því að hafna samstarfi“ Ráðherrann segir ekki rétt að stilla NATO og Evrópusambandinu upp sem andstæðum kostum. Aukin samvinna Evrópuríkja í öryggis- og varnarmálum geti þvert á móti styrkt NATO. Hún nefnir meðal annars áfallaþol, heilbrigðissamstarf, viðbrögð við fjölþáttaógnum og efnahagslegt öryggi sem svið þar sem aðild að ESB gæti styrkt stöðu Íslands. „Ég vil fá úr því skorið hverju það myndi bæta við öryggi Íslands að tilheyra blokk 27 ríkja í Evrópusambandinu, í stað þess að standa fyrir utan.“ Hún segir svarið fást með því að sjá hvaða samningur standi Íslandi til boða og leyfa þjóðinni síðan að greiða atkvæði um hann. „Fullveldi felst ekki í því að hafna samstarfi og sambandi við aðrar þjóðir.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Á annan tug þúsunda greitt atkvæði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Telur minni hita í umræðunni en í öðrum kosningum » Fleiri tengdar fréttir Varnarmál Íslands „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ Varnaræfingin „Norður-Víkingur“ fer fram hér á landi í ágúst Milljarðar án sundurliðunar Myndir: HMS Prince of Wales í Hvalfirði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrír slösuðust í jarðskjálfta á Spáni Sunneva Eir með 1.912 þúsund á mánuði Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna Skaut samnemanda sinn í kennslustund Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málið komið á borð breskra yfirvalda Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Fólk sem ratað hefur í einhverja ógæfu ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Allt að 18 stiga hiti í dag Tilkynntur stolinn og fannst úti í á Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig Nýjast á mbl.is » Þrír slösuðust í jarðskjálfta á Spáni Sunneva Eir með 1.912 þúsund á mánuði Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna Skaut samnemanda sinn í kennslustund Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Málið komið á borð breskra yfirvalda Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Fólk sem ratað hefur í einhverja ógæfu ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Allt að 18 stiga hiti í dag Tilkynntur stolinn og fannst úti í á Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig

Share this article