Innlent | Morgunblaðið | 18.8.2026 | 13:26 Hitnaði í kolunum á kappræðum Íslendingar ganga að kjörborðinu 29. ágúst. mbl.is/Eyþór Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Á annan tug þúsunda greitt atkvæði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur » Fleiri tengdar fréttir Það hitnaði í kolunum þegar stuðningsmenn og andstæðingar ESB-aðildar tókust á í kappræðum í Hörpu í fyrrakvöld en yfirskrift fundarins var „Já til að sjá?“. Félagið Paradigm stóð fyrir fundinum. Tveir ræðumenn úr hvorum herbúðum fluttu 10 mínútna framsögu. Síðan fengu framsögumenn tækifæri til andsvara áður en þeir tóku við spurningum úr sal. Jónas Hagan fjárfestir flutti fyrstu ræðuna en hann er stjórnarmaður í SJÁ-hreyfingunni. Jónas var á persónulegum nótum en hann sagði frá brúðkaupi Bryndísar dóttur sinnar á föstudeginum. Atburðurinn fór fram í salnum Kaldalóni í Hörpu og var skipulagður af félaginu Paradigm. mbl.is/Anton Brink Frétt af mbl.is Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Erum að tala um líf fólks „Þegar ég horfði á hana gifta sig á föstudaginn hugsaði ég því óhjákvæmilega hvaða Ísland tekur við hennar kynslóð og þeirri næstu. Ég á fimm dætur og kannski hugsa ég þess vegna meira um framtíðina en fortíðina. Þegar við tölum um vexti, verðbólgu, gjaldmiðil og efnahagslegan stöðugleika erum við nefnilega ekki að tala um hagfræðihugtök. Við erum að tala um líf fólks,“ sagði Jónas sem taldi misskilnings gæta um þjóðaratkvæðagreiðsluna. „Hluti umræðunnar síðustu viku hefur færst yfir í það að 29. ágúst séum við í rauninni að kjósa um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Það er einfaldlega ekki það sem stendur á kjörseðlinum. Spurningin er: „Á Ísland að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Við erum að kjósa um viðræður, ekki aðild.“ Jónas Hagan: „Viðræður eru ekki samningur og samningur er ekki aðild. Í mínum heimi er viljayfirlýsing ekki endanlegur samningur.“ mbl.is/Anton Brink Getum bara kynnt okkur ESB Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins tefldi fram sjö röksemdum gegn aðild. Sú fyrsta var andsvar við ummælum Jónasar. „Kæru gestir. Við erum ekki að kjósa um að sjá 29. ágúst. Við erum ekki að kjósa um hvort við megum kynna okkur Evrópusambandið. Við getum bara gert það. Við erum ekki að kjósa um hvort stjórnvöld megi afla upplýsinga um kosti og galla aðildar. Það þarf enga þjóðaratkvæðagreiðslu til þess. Við eigum að kalla hlutina réttum nöfnum. Við erum að kjósa um hvort Ísland eigi að ganga til viðræðna við Evrópusambandið um að við göngum þar inn. Við verðum sem sagt umsækjendur um aðild,“ sagði Diljá sem telur að innganga í ESB yrði Íslandi dýrkeypt. Frétt af mbl.is ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári 50 milljarðar á ári „Ísland er norðurslóðaríki og landfræðileg lega okkar er mikilvæg og Ísland er rík þjóð sem myndi greiða með sér inn í Evrópusambandið um 50 milljarða á ári, eitthvað sem hefur ekki gerst síðastliðin 30 ár, að þjóð gangi inn í sambandið til að greiða en ekki til að þiggja. Margar af ríkari þjóðum ESB eru orðnar vel þreyttar á því.“ Diljá Mist: „Reyndar væri það ákveðin einangrunarstefna að festa okkur inni í tollabandalagi í ESB.“ mbl.is/Anton Brink Varanlegar sérlausnir forsenda Hjálmar Örn Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri hreyfingarinnar SJÁ, sagði reynslu sína af því að starfa í sjávarútvegi innan ESB hafa sannfært sig um kosti aðildar. „Sautján ára reynsla mín af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja innan Evrópusambandsins breytti sýn minni. Ég sá að lítil lönd geta haft veruleg áhrif á sín hagsmunamál og það innan frá. En við Íslendingar getum ekki gengið inn nema við tryggjum varanlegar sérlausnir varðandi okkar náttúruauðlindir og þess vegna er ég já til að sjá; stuðningur minn er með skýrum fyrirvara um að við tryggjum náttúruauðlindir Íslendinga varanlega. Og það er bara ein leið til þess að komast að því hvort það sé hægt. Fyrir mér er já 29. ágúst hægristefna. Jafnræði fyrir lögum, samkeppni á jafnréttisgrundvelli, traustur gjaldmiðill, hóflegir vextir og verðbólga, atvinnufrelsi og séreignarréttur. Ekkert af þessu þrífst nema í stöðugleika og að ekki sé gerður greinarmunur á Jóni og séra Jóni,“ sagði Hjálmar Örn. Hjálmar Örn: „Þann 29. ágúst er ekki kosið um inngöngu … Það er kosið um það hvort við klárum viðræður og fáum samning.“ mbl.is/Anton Brink Frétt af mbl.is Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Lagar ekki efnahagsástandið Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fv. utanríkisráðherra, rifjaði upp viðtöl við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra fyrir fáum árum. „Hún útskýrir það síðan mjög vel … að þetta snýst ekki um efnahagsástandið. Við erum ekki að laga efnahagsástandið með því að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hún gat ekkert verið skýrari. Þetta eru ekki mín orð, þetta eru orð Kristrúnar og ég er hjartanlega sammála. Svo sagði hún líka: „Ég veit bara að það er rosalega mikil vegferð að fara í það ferli og það er líka vegferð sem þarf að vera mikil samstaða um hjá þjóðinni, eins og dæmin hafa sýnt. Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr Evrópusambandinu.““ Guðlaugur Þór: „Það er verið að kjósa um það hvort við eigum að sækja um aðild að Evrópusambandinu.“ mbl.is/Anton Brink Atburðinum var streymt á mbl.is og má sjá hann á meðfylgjandi hlekk hér fyrir neðan: Frétt af mbl.is Beint: Kappræður Paradigm um ESB í Hörpu Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Íslandi beri skylda til að endurmeta stöðuna ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Á annan tug þúsunda greitt atkvæði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Samdi í Garðabæ eftir gott gengi Tekjur forsetanna á breiðu bili Mega flytja frjóvguð hrogn frá Noregi Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Listin að taka utan af mandarínu Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðræður við ESB fela í sér aðlögun „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Hitnaði í kolunum á kappræðum Hefur áhyggjur verði ekki gripið í taumana Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Fólk sem ratað hefur í einhverja ógæfu ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Tilkynntur stolinn og fannst úti í á „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig Nýjast á mbl.is » Samdi í Garðabæ eftir gott gengi Tekjur forsetanna á breiðu bili Mega flytja frjóvguð hrogn frá Noregi Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Listin að taka utan af mandarínu Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ Hefur áhyggjur verði ekki gripið í taumana Verstu gróðureldar í Belgíu í heila öld Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Fólk sem ratað hefur í einhverja ógæfu ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Tilkynntur stolinn og fannst úti í á „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig