Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Leggur til að Ásgerður verði dómari við Hæstarétt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.8.2026 | 15:13 Leggur til að Ásgerður verði dómari við Hæstarétt Ráðherra leggur til að Ásgerður Ragnarsdótir verði hæstaréttardómari. Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Ingvarsson/Aðsend Setja bókamerki Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ásgerður Ragnarsdóttir verði skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026. Frá þessu greinir ráðuneytið í tilkynningu. Fram kemur að Ásgerður hafi lokið lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 2004 og viðbótarmeistaragráðu (LL.M.) frá Cambridge-háskóla árið 2008, en hún öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2005 og fyrir Hæstarétti árið 2016. Að loknu laganámi starfaði Ásgerður í dómsmálaráðuneytinu sem lögfræðingur frá júní 2004 til desember 2005, er hún hóf störf sem aðstoðarmaður dómara í Hæstarétti og sinnti hún því starfi til í september 2008. Dæmt í héraði og við Landsrétt Segir svo í tilkynningu ráðuneytisins: „Frá september 2008 til byrjun árs 2018 starfaði hún sem lögmaður á lögmannsstofu, þar af sem meðeigandi frá árinu 2012. Í upphafi árs 2018 var hún skipuð dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og sinnti því starfi þar til hún hóf störf sem landsréttardómari í maí 2023. Hún hefur verið forseti Félagsdóms frá september 2021 og er varadómari við EFTA-dómstólinn. Hún sat í kærunefnd útboðsmála árin 2013-2021, meðal annars sem formaður nefndarinnar frá apríl 2019, var varamaður í óbyggðanefnd í rúmlega tvö ár og varamaður í úrskurðarnefnd velferðarmála í fjögur ár. Þá sat hún í stjórn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands á árunum 2009 – 2017 og siðareglunefnd Lögmannafélags Íslands á árunum 2016 - 2018. Ásgerður hefur verið aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands frá 2017 og sinnti áður stundakennslu við skólann eða frá árinu 2009. Hún hefur skrifað ritrýnda fræðibók ásamt öðrum, tvo ritrýnda bókarkafla og fimm ritrýndar fræðigreinar með öðrum, ásamt því að sitja í ýmsum ritnefndum. Þá hefur hún komið að gerð lagafrumvarpa.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Átta læknar með yfir fimm milljónir Barn fannst með skotáverka Leggur til að Ásgerður verði dómari við Hæstarétt Íslandsmeistarinn snýr aftur til Njarðvíkur Dýrt fyrir Ísland að ganga í ESB Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Öryggi Íslands í breyttum heimi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Hitnaði í kolunum á kappræðum Áróðursvél Rússa teygir angana Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Fólk sem ratað hefur í einhverja ógæfu Tilkynntur stolinn og fannst úti í á ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig Nýjast á mbl.is » Átta læknar með yfir fimm milljónir Barn fannst með skotáverka Leggur til að Ásgerður verði dómari við Hæstarétt Íslandsmeistarinn snýr aftur til Njarðvíkur Dýrt fyrir Ísland að ganga í ESB Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Öryggi Íslands í breyttum heimi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Verstu gróðureldar í Belgíu í heila öld Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Fólk sem ratað hefur í einhverja ógæfu Tilkynntur stolinn og fannst úti í á ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig

Share this article