Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Neitar því að hafa hótað manninum með keðjusög

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.8.2026 | 17:10 Neitar því að hafa hótað manninum með keðjusög: „Við vorum bara hrædd“ Jón Egilsson, lögmaður Sigurðar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Aðalmeðferð heldur áfram: Þrír gefa skýrslu „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi » Fleiri tengdar fréttir Sigurður Gunnar Ásgeirsson, einn sakborninga í Reykholtsmálinu svokallaða, sem nú er til aðalmeðferðar í héraðsdómi, þvertekur fyrir að hafa beitt brotaþola ofbeldi eða vitað af því að einhver annar sakborninganna fimm hafi gert það í apríl 2024. Sigurður leigði brotaþola stúdíóíbúð í Reykholti, sem var í sama raðhúsi og hann bjó sjálfur í. Hann segist ekki hafa séð neina áverka á brotaþola þegar hann kvaddi hann um hádegi mánudaginn 22. apríl. Þá þvertekur hann fyrir að hafa ógnað brotaþola með keðjusög, eins og fram kemur í ákæru. Hann kveðst þó gjarnan hafa notað keðjusög til að saga eldiviðardrumba í sundur en ekki hafa gert það vikuna áður en atvikið átti sér stað. Sigurður er þriðji og síðasti sakborningurinn sem kom fyrir Héraðsdóm Suðurlands í dag og gaf skýrslu fyrir dómi. Með skýrslutöku hans lauk öðrum degi aðalmeðferðar málsins. Í morgun gáfu Halldór Logi Sigurðsson og Níels Pálmar Benediktsson skýrslu fyrir dómi. Frétt af mbl.is „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Frétt af mbl.is Aðalmeðferð heldur áfram: Þrír gefa skýrslu „Við höfðum enga stjórn á aðstæðum“ Í ákæru á hendur Sigurði kemur fram að hin sérlega hættulega og stórfellda líkamsárás hafi verið að undirlagi hans. Því þvertekur Sigurður fyrir. „Það var ekki að minni beiðni að þeir fóru að hitta hann,“ segir Sigurður. „Við höfðum enga stjórn á aðstæðum, ég og konan mín. Við vorum bara hrædd,“ segir hann og vísar þar til líðanar hjónanna á þriðjudeginum, þegar aðstæður höfðu farið úr böndunum. Fyrstu mínútur skýrslutökunnar studdist Sigurður við glósur í bók þar sem hann hafði skráð atburðarásina. Að sögn verjanda hans óttaðist Sigurður að „fara í blackout og segja ekki eitt einasta orð“ í dómsal. Hann lokaði bókinni þó nokkrum mínútum síðar. Sigurður hefur verið í sálfræðimeðferð og tekið þunglyndislyf frá því að atvikið átti sér stað. Málið hafi tekið mjög á hann og fjölskyldu hans, sérstaklega eiginkonu hans, sem að hans sögn hafi legið uppi í rúmi, „ein taugahrúga“, á meðan atburðarásin stóð yfir. Leyft brotaþola að borga lægri leigu Hann segir að í heimsókn Ingunnar Rutar, dóttur hans, og Andra Más Mortensen Birgissonar, sem bæði eru sakborningar í málinu, þann 16. apríl hafi komið til tals að leigjandinn skuldaði ellefu mánaða leigu. Auk þess hafi hann oftast greitt 50.000 krónur á mánuði í stað þeirra 75.000 króna sem kveðið var á um í leigusamningi hans og Sigurðar. Maðurinn hafi meðal annars þrívegis farið til Húsavíkur og unnið þar við slátrun í tvo mánuði í senn og ekki greitt leigu á meðan. Hann hafi borið því við að hann væri fátækur og Sigurður því aumkað sig yfir honum. Frétt af mbl.is „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Færu með manninn í hraðbanka Ætlunin hafi verið að fara til húseigendafélagsins og fá þá til að sjá um lögmæta uppsögn samningsins, en Andri hafi boðist til þess að fara heim til mannsins og skýra fyrir honum hvernig svona leigusamningar virki samkvæmt lögum og reglu. „Hann sagðist alveg vita hvað hann væri að gera þar sem hann hefði verið kominn á þriðja ár í lögfræði fyrir nokkrum árum, og þar með samþykkti ég að hann skýrði þetta fyrir honum.“ Andri hafi síðar tjáð honum að maðurinn hafi samþykkt að borga honum þær 550.000 krónur sem þeim hafði reiknast til að hann skuldaði samkvæmt leigusamningi daginn eftir, en þegar sá peningur hafði ekki borist á bankareikning Sigurðar hafi Andri tjáð honum að hann ætlaði að fara með tveimur vinum sínum heim til mannsins á föstudaginn, 19. apríl. „Mér leist ekki vel á það, en Andri sagði að það væri ekki ofbeldi,“ segir Sigurður fyrir dómi. Þeir myndu fara með brotaþola í hraðbanka og láta hann greiða skuldina þar. Sigurður kveðst ekki hafa hugleitt að það kynni að fela í sér þvingun að þrír menn myndu fylgja manninum í hraðbanka. Fékk tæpar tvær milljónir á reikninginn Sigurður bjóst við að fá greiddar þær 550 þúsund krónur sem hann taldi Samuel skulda sér. Það kom honum því flatt upp á þegar 1.960 þúsund krónur voru lagðar inn á reikning hans, án þess þó að hann hefði kippt sér mikið upp við það. Sigurður millifærði í kjölfarið 600 þúsund krónur á Andra og 100 þúsund krónur á Ingunni, dóttur sína. Frásögn Sigurðar af því hvenær hann frétti að maðurinn væri auðugri en hann hafði gefið upp og ætti milljónir króna á bankareikningum er nokkuð á reiki. Hann kvaðst fyrst ekki hafa vitað af því fyrr en eftir helgina en eftir að gögn málsins voru borin undir hann kvaðst hann ekki muna hvenær hann hefði fengið vitneskju um það. Þá kvaðst hann ítrekað ekki geta tjáð sig um einstök málsatvik þar sem þau vörðuðu dóttur hans, Ingunni. Hann bar þá ástæðu meðal annars fyrir sig þegar hann var spurður hvers vegna hann hefði verið taugaóstyrkur þegar atvinnuveitandi brotaþola spurði hann út í ferðir hans. Sigurður segist hafa kvatt brotaþola á mánudeginum en ekki sagt neinum frá ferðum hans. Þá kvaðst hann ekki hafa getað greint lögreglu frá fyrirætlunum Andra vegna dóttur sinnar. Sigurður sagðist aðeins einu sinni hafa komið inn í íbúðina á meðan brotaþoli var þar frelsissviptur. Þá hafi hann séð brotaþola sitja á dýnu í eldhúsinu. Sú frásögn stangast á við frásögn brotaþola, sem sagði Sigurð meðal annars hafa ógnað sér með keðjusög og hótað að flytja sig sjóleiðina til Grænlands og kasta sér í hafið, „að hætti Íslendinga“. Ræddi ítrekað við Andra Á upptökum af símtölum úr síma Andra kemur ítrekað fram að hann hafi rætt við Sigurð á meðan atburðarásin stóð yfir. Meðal annars leiðbeindi Andri honum um að segjast ekkert vita um ferðir mannsins né hvar lykillinn að húsinu væri. Útgáfa þeirra á atburðarásinni hafi verið sú að maðurinn hefði farið úr landi til að hitta dóttur sína, án vitundar þeirra, og að þeir vissu ekkert um hvarf hans. Andri hughreystir Sigurð jafnframt í símtölunum, segir hitann vera farinn úr málinu og segist vita hvað hann sé að gera. Frétt af mbl.is „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Aðalmeðferð heldur áfram: Þrír gefa skýrslu „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rodri tilkynntur hjá Barcelona Neitar því að hafa hótað manninum með keðjusög Í viðræðum um endurkomu Jack Sparrow Skellur fyrir City þegar stutt er í tímabilið ÍR-ingar styrkja sig Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Öryggi Íslands í breyttum heimi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitnaði í kolunum á kappræðum Áróðursvél Rússa teygir angana Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Málið komið á borð breskra yfirvalda Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Átta læknar með yfir fimm milljónir „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Tilkynntur stolinn og fannst úti í á Tekjur forsetanna á breiðu bili Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig Nýjast á mbl.is » Rodri tilkynntur hjá Barcelona Neitar því að hafa hótað manninum með keðjusög Í viðræðum um endurkomu Jack Sparrow Skellur fyrir City þegar stutt er í tímabilið ÍR-ingar styrkja sig Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Öryggi Íslands í breyttum heimi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Sterk fælingarskilaboð“ Áróðursvél Rússa teygir angana Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Viðræður við ESB fela í sér aðlögun Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Átta læknar með yfir fimm milljónir „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Tilkynntur stolinn og fannst úti í á Tekjur forsetanna á breiðu bili Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig

Share this article