Innlent | mbl | 28.2.2026 | 21:45 Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Brynjari var fagnað er hann var kynntur á þriðja sæti lista Sjálfstæðisflokksins í dag. mbl.is/Ólafur Árdal Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Ekki er mikill munur á stefnumálum Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknar að mati Brynjars Níelssonar en fyrr í dag var tilkynnt að hann muni verma þriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. „Mér heyrist það á málflutningi þeirra að sumt geti alveg farið saman, alla vega hvað varðar rekstur og hugmyndafræði um umferðarmál og skipulagsmál. Ég geri svo sem ekki síður neinn stóran mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki miðað hvernig oddviti [Miðflokksins] hefur talað í þessum viðtölum sem hann hefur verið í undanfarið,“ segir Brynjar í samtali við mbl.is. „Já, ég held að það sé ekkert mikill munur heldur á milli Sjálfstæðisflokks og Einars Þorsteinssonar í Framsóknarflokknum. Og nú er Viðreisn auðvitað svolítið óskrifað blað,“ bætir hann við. Frétt af mbl.is Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Færð ekki breytingar með Samfylkingu Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins í Reykjavík, sagði í samtali við mbl.is fyrr í kvöld að hún teldi ólíklegt að flokkurinn myndi leitast eftir meirihluta með Samfylkingunni og Brynjar tekur í sama streng. „Ef menn ætla að breyta og koma einhverju nýju af stað og breyta um stefnu í borginni þá ferðu auðvitað ekki með Samfylkingunni, ekki með oddvita sem telur að Dagur [B. Eggertsson] sé Alex Ferguson,“ segir Brynjar. „Það gengur bara ekkert upp. Það segir sig sjálft, ég ætla að þú fáir engar breytingar með Samfylkingunni, það væri mjög skrýtið,“ bætir hann svo við. Frétt af mbl.is „Erfitt að taka við af Alex Ferguson“ Frétt af mbl.is Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Listi Sjálfstæðisflokksins var kynntur fyrr í dag. mbl.is/Ólafur Árdal Rekstur borgarinnar í molum Hann segir lista Sjálfstæðismanna vera afar öflugan og hefur trú á því að hann geti hrint af stað þeim breytingum sem nauðsynlegar eru í borginni. Rekstur borgarinnar undanfarið hafi verið „í molum.“ „Það er það sem borgarbúar standa frammi fyrir. Ætlið þið að fara í einhverjar breytingar eða teljið þið einfaldlega að þetta hafi gengið bara alveg frábærlega og við ætlum bara að halda áfram bara á sömu vegferð?“ Frétt af mbl.is Ný könnun fyrir kosningar í borginni: Tveir turnar Töggur í Bjarna Hann segist spenntur að vinna með Bjarna Guðjónssyni sem situr í öðru sæti framboðslistans. „Ég held það sé töggur í þessum strák og hann þorir að segja hlutina eins og þeir eru og ég held við þurfum á því að halda,“ segir Brynjar. Frétt af mbl.is Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Khamenei látinn Stiven markahæstur í Portúgal Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Átti stórleik gegn Kiel – Magdeburg með forskot Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Í raun verið í kreppuverðbólgu í fjögur ár Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir „Við ætlum að rústa hernum þeirra“ Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Íslendingar beðnir um að láta vita af sér 233 milljónir í starfslokasamninga Strætó ver endurgjaldið Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Khamenei látinn Stiven markahæstur í Portúgal Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Átti stórleik gegn Kiel – Magdeburg með forskot Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Khamenei látinn Ísrael gerir loftárásir á Íran Beint: Hernaðaraðgerðir í Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Íslendingar beðnir um að láta vita af sér 233 milljónir í starfslokasamninga Strætó ver endurgjaldið Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju