Búast má við vestlægri eða breytilegri vindátt í dag og yfirleitt fremur hægum vindhraða. Í flestum landshlutum verður bjartviðri en við sjávarsíðu á vestanverðu landinu er viðbúið að lágskýjabakki geri sig gildandi. Fyrir norðan gæti þokuloft legið sums staðar fram eftir degi en sólin ætti svo að hafa vinninginn yfir þokunni, segir í hugleiðingu veðurfræðings. Heilt yfir þokkalega milt eins og hefur verið. Á morgun verður svipað veður upp á teningnum en líklega verður útbreiðsla lágskýja eða þokulofts heldur meira áberandi, einkum þó við ströndina. Á föstudag má gera ráð fyrir suðvestlægri vindátt og úrkomu sem fylgir henni. Úrkoman verður ekki mikil en eykst líklega eftir því sem líður á helgina, enda von á lægðum. Fyrir norðan og austan verður bæði þurrast og hlýjast.